Breski stjörnuspekingurinn Inbaal Honingnman vakti mikla athygli á dögunum þegar hún birti heldur óhefðbundna stjörnuspá. Í greininni sem birtist á Daily Mail segir hún hvert stjörnumerki hafa sína einkennandi förðun sem dregur fram það besta í útliti stjörnumerkjanna.
Breski stjörnuspekingurinn Inbaal Honingnman vakti mikla athygli á dögunum þegar hún birti heldur óhefðbundna stjörnuspá. Í greininni sem birtist á Daily Mail segir hún hvert stjörnumerki hafa sína einkennandi förðun sem dregur fram það besta í útliti stjörnumerkjanna.
Breski stjörnuspekingurinn Inbaal Honingnman vakti mikla athygli á dögunum þegar hún birti heldur óhefðbundna stjörnuspá. Í greininni sem birtist á Daily Mail segir hún hvert stjörnumerki hafa sína einkennandi förðun sem dregur fram það besta í útliti stjörnumerkjanna.
Hefur þú prófað förðunina sem hentar þínu stjörnumerki best?
Hrúturinn: Djarfar varir
Honignman lýsir hrútum sem bæði kraftmiklum og ævintýragjörnum, en hún segir klassískar og djarfar varir fullkomna förðun þeirra. „Uppáhaldsliturinn þeirra er óneitanlega rauður,“ bætir hún við.
Nautið: Skygging
Það er hægt að treysta á að nautin mæti alltaf með fallega skyggingu. „Sem jarðarmerki hallast nautin náttúrulega að hlutlausum tónum. Þau fara ekki endilega í eitthvað glitrandi en kunna að draga fram fallega förðun með skyggingu,“ segir Honignman.
Tvíburinn: Bjartir litir
Að sögn Honignman elskar tvíburinn bjarta liti, sérstaklega þegar kemur að kinna- og varalitum. Hún lýsir tvíburanum sem „frjálsum, virkum og líflegum“ einstaklingi sem elskar að skemmta sér. Því er ekki við öðru að búast en að litapalletta þeirra sé full af björtum litum.
Krabbinn: Rómantísk förðun
Krabbinn elskar allt sem er rómantískt og því kemur ekki á óvart að förðun þeirra sé undir rómantískum áhrifum. Honingnman segir að krabbinn leiti í tímalausa förðun með mjúkum og ferskjulitum tónum.
Ljónið: Alvöru glamúr
Hin djörfu og fögru ljón kunna að meta alvöru glamúr. „Uppáhaldslitur ljónanna er gull – og þau biðjast ekki afsökunar á því að líta stórkostlega út,“ útskýrir Honingnman.
Meyjan: Tímalaust og klassískt
Honingnman lýsir meyjunni sem hagnýtri, raunsærri og snyrtilegri. „Förðun meyjunnar er tímalaus. Meyjan veit hvað hentar þeim og halda sig við það.“
Vogin: Yfirveguð förðun
Honingnman segir vogina vera „glæsilegasta“ merkið. Fyrir þeim er förðun ekki bara förðun heldur hluti af stærri fagurfræðilegu útliti sem inniheldur einnig fatnað og hárgreiðslu – og allt þarf þetta að passa vel saman.
Sporðdrekinn: „Goth“ glamúr
Sporðdrekinn elskar dökka og djúpa liti, bæði þegar kemur að förðun og fatnaði. „Fyrir þeim er tjáning og sköpunargleði mikilvægasti þátturinn í útliti þeirra. Í bæði förðun og fatnaði munu þeir velja djúpa liti sem endurspegla djúpan persónuleika þeirra,“ útskýrir Honingnman.
Bogamaðurinn: Skemmtilegt og frjálst
Bogamaðurinn er óhræddur við að gera tilraunir þegar kemur að útliti sínu. „Þetta skemmtilega og frjálslega merki er þekkt fyrir að vera ævintýralegt – og það nær til förðunarinnar líka,“ segir Honingnman.
Steingeitin: Ljómi, ljómi, ljómi!
„Steingeitin dregur fram eiginleika sína með rauðum varalit, dökkum augnskugga og fallegum gerviaugnhárum sem haldast á allan daginn,“ útskýrir Honingnman. Þá segir hún steingeitina vera dolfallna fyrir fallegum og djörfum ljóma.
Vatnsberinn: Minimalísk förðun
Vatnsberinn er þekktur fyrir að vera mannúðarsinni stjörnumerkjanna. „Það er því líklegt að hann munni einungis fara í vörur sem eru fullkomlega sjálfbærar sem hafa ekki verið prófaðar á dýrum,“ segir Honingnman.
Fiskurinn: Glimmer og nóg af ljóma
Glimmer og glitur eru í forgrunni í fagurfræði fiskanna. „Þeir munu líklega velja örlítið óvenjulegar vörur fram yfir klassíkina,“ útskýrði Honingnman og bætti við að þeir hefðu mikið dálæti á fallegum eyeliner.