Instagram: Bert á milli og Eflingar-jakkar

Instagram | 24. apríl 2023

Instagram: Bert á milli og Eflingar-jakkar

Sumarið kom í síðustu viku og vorfiðringurinn er allsráðandi hvort sem fólk er með bert á milli eða í sumarjakka. Gummi kíró hefur varla farið úr Eflingar-jakkanum eftir að Smartland fjallaði um jakkann. 

Instagram: Bert á milli og Eflingar-jakkar

Instagram | 24. apríl 2023

Ljósmynd/Samsett

Sumarið kom í síðustu viku og vorfiðringurinn er allsráðandi hvort sem fólk er með bert á milli eða í sumarjakka. Gummi kíró hefur varla farið úr Eflingar-jakkanum eftir að Smartland fjallaði um jakkann. 

Sumarið kom í síðustu viku og vorfiðringurinn er allsráðandi hvort sem fólk er með bert á milli eða í sumarjakka. Gummi kíró hefur varla farið úr Eflingar-jakkanum eftir að Smartland fjallaði um jakkann. 

Ástfangnir á árshátíð!

Fjölmiðlastjarnan Siggi Gunnars og kærastinn hans, Sigmar Ingi, skelltu sér á glæsilega árshátíð RÚV. 

Njóta lífsins í Las Vegas!

Leikkonan María Birta óskaði eiginmanni sínum, Ella Egilssyni, til hamingju með afmælið. Hún sagði hann vera bæði besta pabbann og skemmtilegasta lífsförunautinn. 

View this post on Instagram

A post shared by María Birta (@mariabirta)

Ný árstíð, nýtt hár

Sjónvarpsstjarnan Berglind Festival litaði á sér hárið dökkt í tilefni þess að sumarið kom í síðustu viku. 

Alþýðu Gummi!

Áhrifavaldurinn og kírópraktorinn, Gummi kíró, lét ekki segja sér það tvisvar þegar Smartland fjallaði um nýjan sumarjakka hans. Hann sýndi jakkann sinn aftur sem hann kallar líka Eflingar-jakka.  

Gallagalla!

Eurovision-stjarnan Diljá Pétursdóttir er alltaf flott til fara. Hún hefur verið á ferð og flugi að undanförnu og klæddist gallabuxum og gallajakka í London á dögunum. 

Sumarleg skvísa!

Áhrifavaldurinn Sunneva Einarsdóttir var ánægð með góða veðrið í liðinni viku og klæddist sumarlegum fötum. 

Á heimleið!

Rannveig Hildur Guðmundsdóttir og Hallgrímur A. Ingvarsson eignuðust þríbura á skírdag, en í síðustu viku fengu þau að fara heim af spítalanum.

Töff týpa!

Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason er óhræddur við að klæða sig eins og ofurstjarna.

View this post on Instagram

A post shared by @patrikatlason

Glæsilegar í Mílanó!

Þær Íris Laxdal og Karitas Sveinsdóttir voru sannarlega glæsilegar og nutu til hins ýtrasta í Mílanó í vikunni. 

View this post on Instagram

A post shared by Iris Laxdal (@irislaxdal)

Velkomið sumar!

Dansarinn og áhrifavaldurinn, Ástrós Traustadóttir, var töff þegar hún tók á móti sumrinu.

Brynhildur í Brussel!

Áhrifavaldurinn Brynhildur Gunnlaugsdóttir beið spennt eftir sumrinu í Brussel í Belgíu, en hún hefur þegar dregið stuttbuxurnar fram.

Flutt til Lundúna!

Bakarinn Elenora Rós Georgsdóttir fékk draumastarfið í Lundúnum í Bretlandi og flutti þangað í vikunni.

View this post on Instagram

A post shared by Elenora Rós (@bakaranora)

 

Tónlistarveisla í Hörpu!

Páll Óskar var mættur til þess að fagna 60 ára afmæli Jóns Ólafssonar, píanóleikara. 

View this post on Instagram

A post shared by Páll Óskar (@palloskar)

Ekki alltaf í fókus!

Áhrifavaldurinn Jóhanna Helga var í góðum gír um helgina. 

32 vikna bumba!

Ingunn Sigurðardóttir elskar að vera ólétt. 

View this post on Instagram

A post shared by Ingunn Sigurdar (@ingunnsig)



mbl.is