Instagram vikunnar: Óþekkir strákar komu með sumarið

Instagram | 2. maí 2023

Instagram vikunnar: Óþekkir strákar komu með sumarið

Það var ýmislegt í gangi á samfélagsmiðlinum Instagram í vikunni. Fólk fagnaði komu sólarinnar, djammaði í Laugardalshöll með strákasveitinni Backstreet Boys og naut lífsins. Bærinn var fullur af fólki að njóta sólarinnar en svo voru líka nokkrir á rúntinum. Þar á meðal kírópraktorinn Guðmundur Birkir Pálmason, eða Gummi kíró eins og hann er kallaður. 

Instagram vikunnar: Óþekkir strákar komu með sumarið

Instagram | 2. maí 2023

Mikil stemning var í síðustu viku.
Mikil stemning var í síðustu viku.

Það var ýmislegt í gangi á samfélagsmiðlinum Instagram í vikunni. Fólk fagnaði komu sólarinnar, djammaði í Laugardalshöll með strákasveitinni Backstreet Boys og naut lífsins. Bærinn var fullur af fólki að njóta sólarinnar en svo voru líka nokkrir á rúntinum. Þar á meðal kírópraktorinn Guðmundur Birkir Pálmason, eða Gummi kíró eins og hann er kallaður. 

Það var ýmislegt í gangi á samfélagsmiðlinum Instagram í vikunni. Fólk fagnaði komu sólarinnar, djammaði í Laugardalshöll með strákasveitinni Backstreet Boys og naut lífsins. Bærinn var fullur af fólki að njóta sólarinnar en svo voru líka nokkrir á rúntinum. Þar á meðal kírópraktorinn Guðmundur Birkir Pálmason, eða Gummi kíró eins og hann er kallaður. 

Eldheitir með rauðar varir!

Tónlistarmaðurinn Friðrik Ómar Hjörleifsson deildi mynd af sér ásamt félaga sínum og söngvara, Jógvan Hansen, þar sem skáluðu ansi skrautlegir eftir farsælt kvöld við veislustjórnun hjá Öskju.

View this post on Instagram

A post shared by FRIÐRIK ÓMAR (@fromarinn)


Faðmaður af regnboga!

Áhrifavaldurinn Gummi Kíró var hæstánægður með lífið og veðrið þegar hann skellti sér á rúntinn. 

Mæðgnastund!

Dansarinn og áhrifavaldurinn, Ástrós Traustadóttir, naut dagsins með dóttur sinni, Nóru.

Forsetafrúin hitti Backstreet Boys!

Forsetafrúin Eliza Reid deildi hugljúfri sögu á samfélagsmiðlum um Backstreet Boys og rithöfundinn, Danny Ramadan.

View this post on Instagram

A post shared by Eliza Reid (@elizajeanreid)

Blöðrur og kampavín!

Áhrifavaldurinn Jóhanna Helga Jensdóttir var stórglæsileg í tauinu þegar hún hélt upp á afmælið sitt. 

Fögnuðu komu sumarsins!

Þjóðleikhússtjóri, Magnús Geir Þórðarson tók fagnandi á móti sumrinu ásamt fjölskyldu sinni í blíðunni á Akranesi. 

Fagnaði glæsilegum sigri!

Björgvin Páll Gústavsson fagnaði glæsilegum sigri Íslands um helgina en þeir unnu Eistland 30-23.

Kynslóðir sameinaðar!

Kolbrún Pálína Helgadóttir sem var valin Ungfrú Ísland.is árið 2001 var mætt ásamt dóttur sinni á tónleika Backstreet Boys. 

Flottur í tauinu!

Rúrik Gíslason, áhrifavaldur og fyrrverandi knattspyrnumaður, var fantaflottur á rauða dreglinum í Þýskalandi.

Í trylltu formi!

Crossfit-stjarnan Katrín Tanja Davíðsdóttir tók vel á því í vikunni, en hún er í trylltu formi og veit fátt betra en að hreyfa sig.

... líka fyrirsæta!

Söngkonunni Diljá Pétursdóttir er margt til lista lagt, en hún er ekki einungis frábær söngkona heldur líka glæsileg fyrirsæta!

Alsæl í Grikklandi!

Listakonan Rakel Tómasdóttir nýtur þess að skissa fegurðina sem hún upplifir í Grikklandi.

View this post on Instagram

A post shared by Rakel Tomas (@rakeltomas)

Gallafatatryllingur!

Patrik Atlason tónlistarmaður elskar að klæða sig skemmtilega. Hér er hann í gallabuxum og gallajakka. Til að toppa klæðnað dagsins er hann í bláum sokkum í opnum skóm. 

View this post on Instagram

A post shared by @patrikatlason

Alltaf í stuði!

Birgitta slær aldrei slöku við. 

Að springa úr ást!

Sjó­maður­inn Kristján Ein­ar Sig­ur­björns­son, eða Kleini eins og hann er kallaður, og Haf­dís Björg Kristjáns­dótt­ir einkaþjálf­ari birtu fyrstu paramyndina. 

Notalegt í sólinni!

Það væsir ekki um TikTok-stjörnuna Birtu Hlín Sigurðardóttur sem átti notalega stund í sólinni í góðum félagsskap.

View this post on Instagram

A post shared by Birta Hlin (@birtahlin)

mbl.is