Það var líf og fjör á Vinnustofu Kjarval í gær þegar nokkrir íslenskir royalistar tóku sig til og héldu sérstakt teiti vegna krýningar Karls III. Bretlandskonungs. Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir, Guðný Ósk Laxdal, Harpa Hrund Berndsen, Svanhvít og María Margrét Jóhannsdóttir eru hluti af þessum hópi og mættu í sínu fínasta pússi.

Í boðinu var fylgst með krýningarathöfninni á stórum skjá og boðið upp á glæsilegar veitingar í anda bresku konungsfjölskyldunnar. Þar var að finna eggjasamlokur, gúrkusamlokur, skonsur, makkarónur, litla sæta súkkulaðibita og svo var stór súkkulaðiterta með mynd af Karli III.
Eins og sjá má var góð stemning í húsinu og allir í spariskapinu.
Hér fyrir neðan er hægt að fá stemninguna beint í æð á Instagram-reikningi Smartlands: