Sjóðheit á sextugsaldri

Instagram | 9. maí 2023

Sjóðheit á sextugsaldri

Bandaríska leikkonan Elizabeth Hurley kveikti í fólki á Instagram á mánudag þegar hún deildi sjóðheitum speglamyndum af sér í ferskjulituðu bikiníi. 

Sjóðheit á sextugsaldri

Instagram | 9. maí 2023

Ferskjulitaða bikiníið er það nýjasta hjá Elizabeth Hurley Beach.
Ferskjulitaða bikiníið er það nýjasta hjá Elizabeth Hurley Beach. Skjáskot/Instagram

Bandaríska leikkonan Elizabeth Hurley kveikti í fólki á Instagram á mánudag þegar hún deildi sjóðheitum speglamyndum af sér í ferskjulituðu bikiníi. 

Bandaríska leikkonan Elizabeth Hurley kveikti í fólki á Instagram á mánudag þegar hún deildi sjóðheitum speglamyndum af sér í ferskjulituðu bikiníi. 

„Vissir þú að ég á tvíbura? Við erum báðar klæddar glænýja ferskju bikiníinu okkar frá Elizabeth Hurley Beach,“ skrifaði leikkonan við færsluna. Frá árinu 2005 hefur Hurley hannað sundföt og annan strandfatnað og er óhrædd við að kynna vöruúrvalið á samfélagsmiðlum. 

Eldist eins og eðalvín

Fylgjendur hennar höfðu orð á því hve vel hún eldist: „Ég var að horfa á Austin Powers á Netflix í gærkvöldi. Þú hefur elst eins og gott vín,“ skrifaði einn við færsluna. Hurley sem er 57 ára lék á móti Mike Myers í hinni vinsælu Austin Powers, árið 1997, þá 31 árs gömul.

mbl.is