Frelsaði geirvörtuna af kæti

Instagram | 17. maí 2023

Frelsaði geirvörtuna af kæti

Mexíkóska leikkonan Salma Hayek er ófeimin við að birta ýmiss konar skemmtileg augnablik á samfélagsmiðlum. Fólk er þar af leiðandi forvitið að fylgjast með henni og náði leikkonan þeim merka áfanga á þriðjudag að fylgjendur hennar eru orðnir 24 milljónir talsins á Instagram. 

Frelsaði geirvörtuna af kæti

Instagram | 17. maí 2023

Salma Hayek er ófeimin við að sýna líkama sinn og …
Salma Hayek er ófeimin við að sýna líkama sinn og kvenlegar línur. Skjáskot/Instagram

Mexíkóska leikkonan Salma Hayek er ófeimin við að birta ýmiss konar skemmtileg augnablik á samfélagsmiðlum. Fólk er þar af leiðandi forvitið að fylgjast með henni og náði leikkonan þeim merka áfanga á þriðjudag að fylgjendur hennar eru orðnir 24 milljónir talsins á Instagram. 

Mexíkóska leikkonan Salma Hayek er ófeimin við að birta ýmiss konar skemmtileg augnablik á samfélagsmiðlum. Fólk er þar af leiðandi forvitið að fylgjast með henni og náði leikkonan þeim merka áfanga á þriðjudag að fylgjendur hennar eru orðnir 24 milljónir talsins á Instagram. 

Hayek, 56 ára, ákvað að fagna áfanganum með suðrænum gleðidansi en þar sem leikkonan var einungis klædd í baðslopp má segja að hún hafi frelsað geirvörtuna af kæti. 

„24 milljónir fylgjenda, 24 milljón ástæður til þess að brosa. Ég þakka ykkur öllum fyrir að vera samferða mér í þessu villta ferðalagi!“ skrifaði leikkonan við myndbandið. „Ég get vart haldið aftur af mér fyrir spennu og þakklæti.“

Ófeimin við að sýna líkama sinn

Hayek dansaði ásamt starfsmannateymi sínu og lét opna sloppinn ekkert trufla skemmtilegheitin enda hefur leikkonan aldrei verið feimin við að sýna líkama sinn og kvenlegar línur. 

Í síðasta mánuði gerði leikkonan allt vitlaust á samfélagsmiðlum þegar hún birti kynþokkafullar myndir af sér um borð í snekkju íklædd neongulu bikiníi.

mbl.is