Keyptu tíu bíla handa úkraínska hernum

Úkraína | 23. maí 2023

Keyptu tíu bíla handa úkraínska hernum

Íslensk stjórnvöld hafa fest kaup á tíu olíuflutningabílum fyrir úkraínska herinn til að styðja við varnarbaráttu Úkraínu gegn innrásarliði Rússlands.

Keyptu tíu bíla handa úkraínska hernum

Úkraína | 23. maí 2023

Tveir bílar voru afhentir í nýliðinni viku.
Tveir bílar voru afhentir í nýliðinni viku. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Íslensk stjórnvöld hafa fest kaup á tíu olíuflutningabílum fyrir úkraínska herinn til að styðja við varnarbaráttu Úkraínu gegn innrásarliði Rússlands.

Íslensk stjórnvöld hafa fest kaup á tíu olíuflutningabílum fyrir úkraínska herinn til að styðja við varnarbaráttu Úkraínu gegn innrásarliði Rússlands.

Tveir bílar voru afhentir í nýliðinni viku, að því er segir í tilkynningu.

Fram kemur að olíuflutningar skipti miklu máli fyrir varnargetu og hreyfanleika úkraínska hersins andspænis rússnesku innrásaröflunum. Mikill hörgull sé á olíubílum í Úkraínu sem flutt geta eldsneyti fyrir herinn og þarlend stjórnvöld hafi óskað eftir því að vinaþjóðir aðstoði við að útvega slíka bíla.

„Frá upphafi innrásarinnar höfum við lagt áherslu á að styðja stjórnvöld í Úkraínu í samræmi við óskir og þarfir þeirra og getu okkar. Við útvegum ekki úkraínska hernum vopn eða önnur hergögn en við getum hins vegar lagt okkar af mörkum með því að leggja til olíuflutningabíla sem tilfinnanlegur skortur er á og verið fljót til þegar slík þörf skapast,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra í tilkynningunni.

Heildarkostnaður við kaupin á bílunum, umsýslu þeirra og afhendingu nemur 400.000 evrum, jafnvirði um sextíu milljóna króna.

mbl.is