Sundlaugar í lamasessi um helgina

Kjaraviðræður | 26. maí 2023

Sundlaugar í lamasessi um helgina

Skæruverkföll starfsmanna sundlauga sem eru í BSRB munu að öllum líkindum verða til þess að loka þurfi sundlaugum um hvítasunnuhelgina.  

Sundlaugar í lamasessi um helgina

Kjaraviðræður | 26. maí 2023

Frá Sundlaug Akureyrar. Mynd úr safni.
Frá Sundlaug Akureyrar. Mynd úr safni. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Skæruverkföll starfsmanna sundlauga sem eru í BSRB munu að öllum líkindum verða til þess að loka þurfi sundlaugum um hvítasunnuhelgina.  

Skæruverkföll starfsmanna sundlauga sem eru í BSRB munu að öllum líkindum verða til þess að loka þurfi sundlaugum um hvítasunnuhelgina.  

Þetta kemur fram í tilkynningu frá BSRB.

Starfsfólk sundlauga og íþróttamiðstöðva á Vestur-, Norður-, og Austurlandi bætast við hópinn sem þegar hefur lagt niður störf í kjaradeilum BSRB og SNS.

Skæruverkföll verða hjá starfsfólki sundlauga og íþróttamiðstöðva, til að mynda í Borgarbyggð og á Akureyri, og munu þær að öllum líkindum loka dyrum sínum fyrir gestum um hvítasunnuhelgina, að því er segir í tilkynningu.

„Ef samningar nást ekki fyrir 5. júní bætast við sundlaugar og íþróttamiðstöðvar í enn fleiri sveitarfélögum, einnig á höfuðborgarsvæðinu, allt þar til samningar nást,“ segir í tilkynningunni.

Starfsfólk eftirfarandi sundlauga og íþróttamannvirkja leggur niður störf um helgina:

Akureyrarbær

  • Sundlaug Akureyrar
  • Sundlaug Glerárskóla (Íþróttamiðstöð Glerárskóla)
  • Íþróttamiðstöðin í Hrísey, sundlaug og líkamsrækt

Dalvíkurbyggð

  • Íþróttamiðstöð - Sundlaug Dalvíkur

Fjallabyggð

  • Sundlaugin í Ólafsfirði og íþróttamiðstöð Fjallabyggðar í Ólafsfirði
  • Sundhöllin á Siglufirði og íþróttamiðstöð Fjallabyggðar á Siglufirði

Skagafjörður

  • Sundlaugin í Varmahlíð og íþróttahúsið Varmahlíð
  • Sundlaug Sauðárkróks við Skagfirðingabraut og íþróttahús Sauðárkróks
  • Sundlaugin á Hofsósi

Fjarðabyggð

  • Stefánslaug Neskaupstað

Borgarbyggð

  • Sundlaugin og íþróttamiðstöðin Borgarnesi

Snæfellsbær

  • Sundlaug Snæfellsbæjar
  • Íþróttahús Snæfellsbæjar

Vesturbyggð

  • Brattahlíð, sundlaug Patreksfirði
mbl.is