Starfsgreinasamband Íslands (SGS) hefur vísað kjaradeilu sinni við ríkið til ríkissáttasemjara.
Starfsgreinasamband Íslands (SGS) hefur vísað kjaradeilu sinni við ríkið til ríkissáttasemjara.
Starfsgreinasamband Íslands (SGS) hefur vísað kjaradeilu sinni við ríkið til ríkissáttasemjara.
„Samningsaðilar hafa á undanförnum vikum átt fjölmarga fundi þar sem SGS hefur komið kröfum sínum málefnalega á framfæri við samninganefnd ríkisins, en án árangurs,“ segir í tilkynningu á vef SGS.
Kjarasamningur SGS og fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs rann út 31. mars 2023.
„Í ljósi þess hversu langt er á milli aðila lítur SGS svo á að ekkert annað sé í stöðunni en að vísa deilunni til ríkissáttasemjara. Jafnframt var farið fram á það við ríkissáttasemjara að hann boði til fundar eins fljótt og auðið er, enda óásættanlegt að launafólk bíði mánuðum saman eftir sanngjörnum kjarabótum.“
Samninganefnd Eflingar skrifaði undir kjarasamning við ríkið í gærkvöldi.