Erilsamur dagur í Karphúsinu

Kjaraviðræður | 2. júní 2023

Erilsamur dagur í Karphúsinu

Fundur Starfsgreinasambands Ísland (SGS) og samninganefnda ríkisins hófst hjá ríkissáttarsemjara rétt í þessu. Fundur BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga hófst í morgun klukkan 10 og því nóg að gera í Karphúsinu í dag.  

Erilsamur dagur í Karphúsinu

Kjaraviðræður | 2. júní 2023

Vilhjálmur Birgisson, formaður SGS, og Ástráður Haraldsson, settur ríkissáttarsemjari.
Vilhjálmur Birgisson, formaður SGS, og Ástráður Haraldsson, settur ríkissáttarsemjari. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fundur Starfsgreinasambands Ísland (SGS) og samninganefnda ríkisins hófst hjá ríkissáttarsemjara rétt í þessu. Fundur BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga hófst í morgun klukkan 10 og því nóg að gera í Karphúsinu í dag.  

Fundur Starfsgreinasambands Ísland (SGS) og samninganefnda ríkisins hófst hjá ríkissáttarsemjara rétt í þessu. Fundur BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga hófst í morgun klukkan 10 og því nóg að gera í Karphúsinu í dag.  

Deila SGS snýr að kjarasamningum við fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd ríkissjóðs rann út í lok mars, en að sögn Vilhjálms sat sambandið ellefu fundi með samninganefnd ríkisins þangað til þeir sáu sig knúna til að vísa málinu til ríkissáttasemjara. 

Þá krefst SGS að fá sömu laun fyrir sömu störf, en samkvæmt launatöflum sem liggja fyrir eru launatöflur BSRB við ríkið fyr­ir sam­bæri­leg störf hærri en þær sem ríkið hefur boðið SGS, og telur sambandið það brot á jafnréttislögum. 

Verða að fá launahækkanir vegna kostnaðarhækkana

Í samtali við mbl.is á miðvikudaginn sagði Vilhjálmur þetta: 

„Við erum að tala um tekju­lægsta fólkið sem starfar hjá rík­inu. Því er mjög mik­il­vægt að hraða þessu máli því fólk verður að fá sín­ar launa­hækk­an­ir eins fljótt og hætt er sök­um þeirra miklu kostnaðar­hækk­ana sem hafa orðið á öll­um sviðum ís­lensks sam­fé­lags á liðnum miss­er­um.“

Þess má geta að kjaradeila BSRB snýr að starfsmönnum sveitarfélaga, en ekki að ríkisstarfsmönnum eins og deila SGS.

SGS og samninganefnd ríkisins við samningaborðið hjá ríkissáttasemjara.
SGS og samninganefnd ríkisins við samningaborðið hjá ríkissáttasemjara. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is