Fundi lokið: Víðtækar verkfallsaðgerðir í dag

Kjaraviðræður | 5. júní 2023

Fundi lokið: Víðtækar verkfallsaðgerðir í dag

Fundi BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga í Karphúsinu, sem hófst klukkan 13 í gær, lauk á öðrum tímanum í nótt án niðurstöðu. 

Fundi lokið: Víðtækar verkfallsaðgerðir í dag

Kjaraviðræður | 5. júní 2023

Elísabet S. Ólafsdóttir sáttasemjari og Sonja Ýr Þor­bergs­dótt­ir, formaður BSRB, …
Elísabet S. Ólafsdóttir sáttasemjari og Sonja Ýr Þor­bergs­dótt­ir, formaður BSRB, í Karphúsinu í síðasta mánuði. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fundi BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga í Karphúsinu, sem hófst klukkan 13 í gær, lauk á öðrum tímanum í nótt án niðurstöðu. 

Fundi BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga í Karphúsinu, sem hófst klukkan 13 í gær, lauk á öðrum tímanum í nótt án niðurstöðu. 

Þar sem ekkert samkomulag er í höfn hefjast víðtækar verkfallsaðgerðir BSRB í dag í 29 sveitarfélögum. Munu alls um 2.500 manns leggja niður störf.

Verkföllin ná m.a. til starfsfólks í leikskólum, sundlaugum, íþróttamannvirkjum, þjónustumiðstöðvum, bæjarskrifstofum, áhaldahúsum og höfnum.

Á vef BSRB segir að verkföllin hafi áhrif á að minnsta kosti 150 starfsstöðvar um allt land. „Ekki er gripið til verkfallanna af léttúð heldur til að knýja fram kröfur gagnvart sveitarfélögum landsins sem neita að leiðrétta launamisrétti gagnvart starfsfólki sínu,“ segir þar jafnframt.

„Ábyrgð okkar allra er mikil og hefur BSRB lagt fram fjölmargar tillögur til að ná sátt. Þótt eitthvað hafi þokast í samningsátt á samningafundum síðustu daga neitar Samband íslenskra sveitarfélaga enn að koma til móts við réttláta kröfu okkar um sömu laun fyrir sömu störf. Það eru gríðarleg vonbrigði að við höfum ekki náð lengra og ljóst að mikill þungi færist í aðgerðir okkar frá og með morgundeginum og þar til lausn fæst í málið,” er haft eftir Sonju í tilkynningu BSRB.

Hægt er að nálgast yfirlit yfir verkfallsaðgerðir hér.

mbl.is