„Þetta er svívirðilegur verknaður“

Úkraína | 6. júní 2023

„Þetta er svívirðilegur verknaður“

Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, segir skemmdir á stórri úkraínskri stíflu bera vott um eyðilegginguna sem innrás Rússa í Úkraínu hefur haft í för með sér.

„Þetta er svívirðilegur verknaður“

Úkraína | 6. júní 2023

Þessi ljósmynd sýnir skemmdirnar sem hafa orðið á stíflunni.
Þessi ljósmynd sýnir skemmdirnar sem hafa orðið á stíflunni. AFP

Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, segir skemmdir á stórri úkraínskri stíflu bera vott um eyðilegginguna sem innrás Rússa í Úkraínu hefur haft í för með sér.

Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, segir skemmdir á stórri úkraínskri stíflu bera vott um eyðilegginguna sem innrás Rússa í Úkraínu hefur haft í för með sér.

Jens Stoltenberg.
Jens Stoltenberg. AFP/Hanna Johre

„Eyðilegging stíflunnar Kakhovka gerir það að verkum að þúsundir almennra borgara eru í hættu og veldur alvarlegum umhverfisskaða. Þetta er svívirðilegur verknaður, sem sýnir enn og aftur grimmdina í stríði Rússa í Úkraínu,” skrifaði Stoltenberg á Twitter.

Flóð í Kerson-héraði eftir að stíflan skemmdist.
Flóð í Kerson-héraði eftir að stíflan skemmdist. AFP/Sergiy Dollar

Scholz talar um „nýja vídd“

Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, segir árásina vera „nýja vídd” þegar kemur að stríðinu og bætast við mörg önnur afbrot rússneskra hermanna sem ráðast á staði fyrir almenna borgara í stað þess að beina sjónum sínum að hernaðarlegum skotmörkum.

„Þetta er hluti af mörgum glæpum sem við höfum séð rússneska hermenn í Úkraínu fremja og eru hluti af hernaði þeirra þar sem ráðist er á almenna borgara – bæi, þorp, sjúkrahús, skóla,” sagði Scholz.

Hann sagði eyðileggingu stíflunnar vera „nýja vídd sem passar einnig inn í hvernig Pútín [Rússlandsforseti] hagar sér í stríðinu”.

Olaf Scholz.
Olaf Scholz. AFP/Kay Nietfeld

Bjarni fordæmir árásina

Bjarni Jónsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, fordæmir árásina og segir hana bæði hræðilega og fordæmislausa.

„Hryllingurinn sem úkraínskur almenningur verður fyrir af hendi óvinar síns heldur áfram að fara yfir öll mörk. Þúsundir almennra borgara eru í hættu,” skrifaði hann á Twitter.

Flóð í Kerson.
Flóð í Kerson. AFP/Sergiy Dollar
mbl.is