Vissu af áætlunum Úkraínumanna um skemmdarárás

Úkraína | 6. júní 2023

Vissu af áætlunum Úkraínumanna um skemmdarárás

Þremur mánuðum áður en skemmdarverk voru unnin á Nord Stream-gasleiðslunum í september fékk ríkisstjórn Joe Bidens gögn frá evrópsku leyniþjónustunni þar sem upplýst var um áætlanir úkraínska hersins um að fremja skemmdarárás á leiðslunum. Þessu heldur Washington Post fram. 

Vissu af áætlunum Úkraínumanna um skemmdarárás

Úkraína | 6. júní 2023

Mynd sem var tekin 29. september sem sýnir gas leka …
Mynd sem var tekin 29. september sem sýnir gas leka upp á yfirborðið frá Nord Stream 2 gasleiðslunni í Eystrasalti. AFP

Þremur mánuðum áður en skemmdarverk voru unnin á Nord Stream-gasleiðslunum í september fékk ríkisstjórn Joe Bidens gögn frá evrópsku leyniþjónustunni þar sem upplýst var um áætlanir úkraínska hersins um að fremja skemmdarárás á leiðslunum. Þessu heldur Washington Post fram. 

Þremur mánuðum áður en skemmdarverk voru unnin á Nord Stream-gasleiðslunum í september fékk ríkisstjórn Joe Bidens gögn frá evrópsku leyniþjónustunni þar sem upplýst var um áætlanir úkraínska hersins um að fremja skemmdarárás á leiðslunum. Þessu heldur Washington Post fram. 

Er úkraínski herinn sagður hafa skipulagt árás með kafarateymi sem heyrði beint undir hæstráðanda Úkraínuhers.

Í umfjöllun Washington Post segir að Jack Teixeira hafi greint frá samskiptunum á spjallvettvanginum Discord. Teixeira starfaði áður fyr­ir njósna­deild þjóðvarðliðsins í Massachusetts en hefur verið ákærður fyrir að leka tugum bandarískra leyniskjala.

Tekið skal fram að úkraínsk stjórnvöld hafa þvertekið fyrir ásakanir um aðild að skemmdarárásinni.

Segja leyniþjónustuna með heimildarmann í Úkraínu

Evrópsk leyniþjónusta komst yfir gögnin um meintar áætlanir hersins og deildi með bandarísku leyniþjónustunni (CIA) í júní á síðasta ári. Fram að þessu hafa engin gögn komið fram sem bendla úkraínsk stjórnvöld við árásina með jafn beinum hætti.

Gögnin á evrópska leyniþjónustan að hafa fengið frá heimildarmanni í Úkraínu.

Samkvæmt heimildarmönnum Washington Post, sem vildu ekki koma fram undir nafni, var ekki hægt að staðfesta upplýsingar heimildarmanns evrópsku leyniþjónustunnar strax. 

Bandaríska leyniþjónustan upplýsti þó stjórnvöld í Þýskalandi og annarra ríkja Evrópu um hvað hafði fram komið, í júní á síðasta ári.

Segja bandamenn hafa grunað Úkraínu í tæpt ár

Samkvæmt gögnum sem Washington Post hefur undir höndum hafa bandamenn Kænugarðs haft ástæðu til að gruna úkraínsk stjórnvöld um skemmdarverkið í liðlega ár. Grunurinn hefur einungis orðið sterkari á síðustu mánuðum þar sem rannsókn þýskra yfirvalda hefur leitt í ljós sönnunargögn sem styðja þá tilgátu að Úkraínumenn hafi verið að verki. 

Embættismenn í þó nokkrum löndum hafa staðfest við Washington Post að upplýsingarnar sem birtust á Discord séu vissulega það sem evrópska leyniþjónustan sagði þeirri bandarísku, að því er fram kemur í grein miðilsins. 

Þá segir einnig í umfjölluninni að miðillinn hafi samþykkt að birta ekki allar upplýsingarnar sem hann hefur undir höndum að beiðni embættismanna þar sem málið væri viðkvæmt og það gæti stefnt aðgerðum og heimildarmönnum í hættu.

Enn er allt á huldu um verknaðinn og eins og áður sagði hafa úkraínsk stjórnvöld þvertekið fyrir að standa að baki árásinni.

Þá hafa norrænu Skyggekrig þættirnir leitt í ljós grunsamlegar ferðir skipa á vegum rússneska sjóhersins í aðdraganda sprengingarinnar.

mbl.is