Fantaflott íbúð á besta stað í 101

Heimili | 15. ágúst 2023

Fantaflott íbúð á besta stað í 101

Það er eftirsóknarvert að búa í hjarta miðbæjar Reykjavíkur. Við Freyjugötu er að finna 102 fm íbúð sem er í húsi sem byggt var 1927. Íbúðin er á tveimur hæðum og undir súð að hluta til. Hún hefur verið endurnýjuð mikið en í henni eru nýlegar innréttingar í eldhúsi og á baðherbergi. 

Fantaflott íbúð á besta stað í 101

Heimili | 15. ágúst 2023

Við Freyjugötu er að finna einstaklega fallega íbúð sem gerð …
Við Freyjugötu er að finna einstaklega fallega íbúð sem gerð hefur verið upp á heillandi hátt. Ljósmynd/Samsett

Það er eftirsóknarvert að búa í hjarta miðbæjar Reykjavíkur. Við Freyjugötu er að finna 102 fm íbúð sem er í húsi sem byggt var 1927. Íbúðin er á tveimur hæðum og undir súð að hluta til. Hún hefur verið endurnýjuð mikið en í henni eru nýlegar innréttingar í eldhúsi og á baðherbergi. 

Það er eftirsóknarvert að búa í hjarta miðbæjar Reykjavíkur. Við Freyjugötu er að finna 102 fm íbúð sem er í húsi sem byggt var 1927. Íbúðin er á tveimur hæðum og undir súð að hluta til. Hún hefur verið endurnýjuð mikið en í henni eru nýlegar innréttingar í eldhúsi og á baðherbergi. 

Eldhúsið er opið inn í stofu og borðstofu og hefur að geyma hvítar innréttingar og eyju. Eyjan er klædd með dökkum við og þar er líka vínkælir. Hægt er að sitja við eyjuna en þar er líka pláss fyrir borðstofuborð. 

Í íbúðinni eru skrautlistar meðfram veggjum og loftum.

Allir gluggar eru hvítlakkaðir og er að finna hvíta lista meðfram gólfi og loftum sem gerir íbúðina ennþá meira sjarmerandi. 

Íbúðin er máluð í mjúkum litum sem halda vel utan um íbúana og tóna vel við parketið á gólfunum og húsgögnin. 

Af fasteignavef mbl.is: Freyjugata 25

Stofan er hlýleg og þar sést vel hvernig hægt er …
Stofan er hlýleg og þar sést vel hvernig hægt er að nota Ivar-hillurnar frá IKEA á sniðugan hátt.
mbl.is