5 flottustu íbúðirnar undir 65 fm

Heimili | 26. ágúst 2023

5 flottustu íbúðirnar undir 65 fm

Á fasteignavef mbl.is má finna úrval af fjölbreyttum eignum til sölu í hinum ýmsu stærðum, gerðum og stílum. Þó að stórar villur sem telja hundruð fermetra veki oft athygli eru mun fleiri sem eru í leit að minni eignum, en þær eru ekki síður sjarmerandi og hafa margar hverjar mikla möguleika.

5 flottustu íbúðirnar undir 65 fm

Heimili | 26. ágúst 2023

Á fasteignavef mbl.is er úrval af eignum undir 65 fm …
Á fasteignavef mbl.is er úrval af eignum undir 65 fm til sölu. Samsett mynd

Á fasteignavef mbl.is má finna úrval af fjölbreyttum eignum til sölu í hinum ýmsu stærðum, gerðum og stílum. Þó að stórar villur sem telja hundruð fermetra veki oft athygli eru mun fleiri sem eru í leit að minni eignum, en þær eru ekki síður sjarmerandi og hafa margar hverjar mikla möguleika.

Á fasteignavef mbl.is má finna úrval af fjölbreyttum eignum til sölu í hinum ýmsu stærðum, gerðum og stílum. Þó að stórar villur sem telja hundruð fermetra veki oft athygli eru mun fleiri sem eru í leit að minni eignum, en þær eru ekki síður sjarmerandi og hafa margar hverjar mikla möguleika.

Smartland tók því saman fimm flottustu íbúðirnar sem eru til sölu og eru undir 65 fm að stærð. 

Laugavegur 27

Við Laugaveg í miðbæ Reykjavíkur er til sölu afar sjarmerandi 64 fm íbúð sem er staðsett á fjórðu hæð í nýlegu fjölbýlishúsi. Íbúðin hefur verið innréttuð á glæsilegan máta þar sem húsmunir frá fremstu hönnuðum heims fá að njóta sín. 

Í íbúðinni er eitt svefnherbergi og eitt baðherbergi. Ásett verð er 69,9 milljónir.

Sjá á fasteignavef mbl.is: Laugavegur 27

Sjarmerandi skandinavískt yfirbragð er yfir íbúðinni.
Sjarmerandi skandinavískt yfirbragð er yfir íbúðinni. Samsett mynd

Brautarholt 20

Við Brautarholt í Reykjavík er til sölu skemmtilega uppsett 45 fm stúdíóíbúð í sögulegu húsi sem reist var árið 1953. Aukin lofthæð og stórir gluggar gefa íbúðinni skemmtilegan karakter og hleypa mikilli birtu inn. 

Ásett verð er 48,9 milljónir. 

Sjá á fasteignavef mbl.is: Brautarholt 20

Íbúðin er skemmtilega uppsett og fermetrarnir vel nýttir.
Íbúðin er skemmtilega uppsett og fermetrarnir vel nýttir. Samsett mynd

Skipholt 70

Við Skipholt í Reykjavík er til sölu afar smekkleg 60 fm íbúð í fjölbýlishúsi sem reist var árið 1965. Studio Granda sá um hönnun hússins að innan og utan, en þriggja metra lofthæð, gólfsíðir gluggar og sérsmíðaðar háar hurðar skapa skemmtilega stemningu í íbúðinni.

Í íbúðinni eru eitt svefnherbergi og eitt baðherbergi. Ásett verð er 57,9 milljónir.

Sjá á fasteignavef mbl.is: Skipholt 70

Íbúðin er björt og skemmtilega hönnuð.
Íbúðin er björt og skemmtilega hönnuð. Samsett mynd

Síðumúli 39

Við Síðumúla í Reykjavík er til sölu snotur 45 fm íbúð í fjölbýlishúsi sem reist var árið 2019. Eignin er stílhrein, með aukinni lofthæð, en það er þó án efa snyrtileg 27 fm timburverönd sem setur punktinn yfir i-ið. 

Eitt svefnherbergi og eitt baðherbergi eru í íbúðinni. Ásett verð er 45,5 milljónir.

Sjá á fasteignavef mbl.is: Síðumúli 39

Snyrtileg 27 fm timburverönd gefur eigninni mikinn sjarma.
Snyrtileg 27 fm timburverönd gefur eigninni mikinn sjarma. Samsett mynd

Sogavegur 81

Við Sogaveg í Reykjavík er til sölu 53 fm stúdíóíbúð í sérlega flottu fjölbýlishúsi sem reist var árið 2020. Búið er að stúka svefnrýmið af með snyrtilegum glerveggjum og rennihurð sem gefa íbúðinni notalegan blæ, en úr alrýminu er svo útgengt á skjólgóðar svalir til vesturs.

Ásett verð er 47,9 milljónir.

Sjá á fasteignavef mbl.is: Sogavegur 81

Íbúðin er staðsett í nýlegu og sjarmerandi fjölbýlishúsi.
Íbúðin er staðsett í nýlegu og sjarmerandi fjölbýlishúsi. Samsett mynd
mbl.is