Jóhanna Vigdís og Riaan selja sérhæð með glæsieldhúsi

Heimili | 5. september 2023

Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, fyrrum framkvæmdastjóri Almannaróms, og eiginmaður hennar Riaan Dreyer, framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka, hafa sett glæsilega endurnýjaða eign sína við Laugateig á sölu.

Samsett mynd

Um er að ræða tvær íbúðir sem búið er að sameina í eina stóra. Sérstaka athygli vekur ljós eldhúsinnrétting í stóru opnu eldhúsi. Í eldhúsinu er myndarleg eyja með náttúrusteini. Erna Geirlaug Árnadóttir innanhússarkitekt FHI hannaði innréttingarnar. 

Eigendurnir eru greinilega fagurkerar og í allri endurnýjun hefur verið haldið í stíl hússins. Eignin er samtals 227 fermetrar og er ásett verð 167 milljónir. 

Af fasteignavef mbl.is: Laugateigur 23

mbl.is