Þórdís kallar eftir auknu samstarfi NB8-ríkjanna

Úkraína | 7. september 2023

Þórdís kallar eftir auknu samstarfi NB8-ríkjanna

Breytt landslag heimsmála kallar á enn öflugara samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkja á alþjóðavettvangi. Þetta sagði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra á árlegum fundi utanríkisráðherra NB8-ríkjanna í Lettlandi sem var að klárast fyrr í dag. 

Þórdís kallar eftir auknu samstarfi NB8-ríkjanna

Úkraína | 7. september 2023

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra ásamt forsætisráðherra Lettlands, Krišjānis Kariņš.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra ásamt forsætisráðherra Lettlands, Krišjānis Kariņš. mbl.is/Gatis Rozenfelds, Valsts kanceleja

Breytt landslag heimsmála kallar á enn öflugara samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkja á alþjóðavettvangi. Þetta sagði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra á árlegum fundi utanríkisráðherra NB8-ríkjanna í Lettlandi sem var að klárast fyrr í dag. 

Breytt landslag heimsmála kallar á enn öflugara samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkja á alþjóðavettvangi. Þetta sagði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra á árlegum fundi utanríkisráðherra NB8-ríkjanna í Lettlandi sem var að klárast fyrr í dag. 

„Málefni Úkraínu eru okkur ávallt ofarlega í huga,“ er haft eftir Þórdísi í fréttatilkynningu ráðuneytisins af sameiginlegum blaðamannafundi ráðherranna að fundi loknum.

Ríkin í NB8 eru Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin þrjú, Eistland, Lettland og Litháen. Funda þau saman árlega.

Segir Norðurlöndin ekki gefa neitt eftir

„Einarður stuðningur Eystrasaltsríkjanna við Úkraínu er okkur innblástur enda þekkja þau best af eigin raun þá ógn sem stafar af Rússlandi sem ekki virðir alþjóðalög og landamæri.

Norðurlöndin láta ekki sitt eftir liggja enda er nauðsynlegt að styðja varnarbaráttu Úkraínu til að standa vörð um lýðræðið og þau gildi sem við deilum,“ er haft eftir Þórdísi.

Málefni Úkraínu voru rædd af ráðherrunum og nauðsyn þess að ráðamenn í Rússlandi verði látnir sæta ábyrgð vegna innrásarstríðsins, sem og mögulegar leiðir til að fylgja eftir yfirlýsingu G7-ríkjanna frá því í sumar, um áframhaldandi stuðning við Úkraínu og raunhæfar langtímaskuldbindingar einstakra ríkja. 

Ræddu orkumál

Á fundi ráðherranna var einnig rætt um aukna orkuþörf í Evrópu og orkuöryggi á tímum loftslagsbreytinga.

„Við höfum átt í mikilvægum samræðum um hvernig við getum unnið saman að því að hraða grænu orkuskiptunum og efla sameiginlegt orkuöryggi okkar. Við Íslendingar búum auðvitað yfir víðtækri reynslu og þekkingu í þeim efnum,“ er haft eftir Þórdísi.

Ríkin í NB8 samstarfinu skiptast á að taka að sér formennsku í hópnum en Ísland fór síðast með formennskuna árið 2019 og tekur næst við aftur 2029. Lettland er í formennsku 2023 og Svíþjóð tekur við um áramót. 

mbl.is