Einstök hönnunarperla í 101 Reykjavík

Heimili | 15. september 2023

Einstök hönnunarperla í 101 Reykjavík

Við Hverfisgötu í miðbæ Reykjavíkur er að finna stórglæsilega 223 fm hæð í húsi sem reist var árið 1930. Eignin var hönnuð af Sólveigu Andreu Jónsdóttur innanhúsarkitekt og endurgerð árið 2016-2017 í svokölluðum „New York loft“ stíl. Í íbúðinni er svo ein af elstu lyftum Reykjavíkur sem hefur verið endurgerð í upprunalegri mynd.

Einstök hönnunarperla í 101 Reykjavík

Heimili | 15. september 2023

Einstök fagurfræði einkennir hæðina sem telur 223 fm.
Einstök fagurfræði einkennir hæðina sem telur 223 fm. Samsett mynd

Við Hverfisgötu í miðbæ Reykjavíkur er að finna stórglæsilega 223 fm hæð í húsi sem reist var árið 1930. Eignin var hönnuð af Sólveigu Andreu Jónsdóttur innanhúsarkitekt og endurgerð árið 2016-2017 í svokölluðum „New York loft“ stíl. Í íbúðinni er svo ein af elstu lyftum Reykjavíkur sem hefur verið endurgerð í upprunalegri mynd.

Við Hverfisgötu í miðbæ Reykjavíkur er að finna stórglæsilega 223 fm hæð í húsi sem reist var árið 1930. Eignin var hönnuð af Sólveigu Andreu Jónsdóttur innanhúsarkitekt og endurgerð árið 2016-2017 í svokölluðum „New York loft“ stíl. Í íbúðinni er svo ein af elstu lyftum Reykjavíkur sem hefur verið endurgerð í upprunalegri mynd.

Eignin er sannkölluð hönnunarperla og státar af tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Aukin lofthæð og góðir gluggar gefa íbúðinni mikinn glæsibrag, en hún hefur verið innréttuð á sérlega sjarmerandi máta sem gleður augað.

Í stóru og glæsilegu alrými eru eldhús, stofa og borðstofa samliggjandi. Eldhúsið er bjart með fallegri sérsmíðaðri eldhúsinnréttingu frá Fagus og stórri eldhúseyju úr marmara. Í stað efri skápa hefur einfaldri svartri hillu verið komið fyrir ásamt tveimur stílhreinum veggljósum sem skapa notalega stemningu í rýminu. 

Eldhúsið er bjart og stílhreint, en stór marmaraeyja setur án …
Eldhúsið er bjart og stílhreint, en stór marmaraeyja setur án efa sterkan svip á rýmið.
Eignin hefur verið innréttuð á afar sjarmerandi máta.
Eignin hefur verið innréttuð á afar sjarmerandi máta.

Falleg húsgögn og klassísk hönnun

Falleg borðstofuhúsgögn setja svo sterkan svip á rýmið á meðan listaverk sem prýða borðstofuvegginn bæta skemmtilegum karakter og litagleði við rýmið. Svartir Wishbone stólar úr smiðju Hans J. Wegner, en þeir eru klassísk hönnun frá 1949 og þykja einkar formfagrir. 

Ljóst eikarparket með fiskibeinamynstri á gólfum gefur eigninni mýkt og tónar vel við húsgögnin. Þrír tignarlegir sófar prýða stofuna, en það er þó án efa glæsileg kristalljósakróna sem setur punktinn yfir i-ið í rýminu. Inn af stofu er svo sjarmerandi hjónaherbergi sem er aðskilið með sérsmíðuðum glervegg frá Suðulist. 

Sjá á fasteignavef mbl.is: Hverfisgata

Alrýmið er rúmgott og bjart með aukinni lofthæð og stórum …
Alrýmið er rúmgott og bjart með aukinni lofthæð og stórum gluggum.
Flottur myndaveggur býr til skemmtilega stemningu í rýminu.
Flottur myndaveggur býr til skemmtilega stemningu í rýminu.
Ljósakrónan er afar falleg og fangar augað samstundis.
Ljósakrónan er afar falleg og fangar augað samstundis.
mbl.is