Sjáðu flottustu hausttískuna á rauða dregli Vogue

Fatastíllinn | 15. september 2023

Sjáðu flottustu haust tískuna á rauða dregli Vogue

Síðastliðinn fimmtudag hélt tískutímaritið Vogue sinn árlega Vogue World-viðburð í hinu fræga Theatre Royal Drury Lane í Lundúnum, þar sem bresku leikhúsi og tísku var fagnað. 

Sjáðu flottustu haust tískuna á rauða dregli Vogue

Fatastíllinn | 15. september 2023

Rauði dregillinn var sérlega glæsilegur síðastliðið fimmtudagskvöld.
Rauði dregillinn var sérlega glæsilegur síðastliðið fimmtudagskvöld. Samsett mynd

Síðastliðinn fimmtudag hélt tískutímaritið Vogue sinn árlega Vogue World-viðburð í hinu fræga Theatre Royal Drury Lane í Lundúnum, þar sem bresku leikhúsi og tísku var fagnað. 

Síðastliðinn fimmtudag hélt tískutímaritið Vogue sinn árlega Vogue World-viðburð í hinu fræga Theatre Royal Drury Lane í Lundúnum, þar sem bresku leikhúsi og tísku var fagnað. 

Gestalistinn var stjörnum prýddur og var dagskráin pökkuð af spennandi sýningum frá hinum ýmsu listamönnum hvaðanæva að úr heiminum. Í lokin fylltist rauði dregillinn af stjörnum sem sýndu glæsilega hönnun frá frægustu tískuhúsum heims úr haustlínum þeirra 2023.

Það vantaði því ekkert upp á glæsileikann og glamúrinn, en Smartland tók saman flottustu tískuna af rauða dreglinum sem spáð er miklum vinsældum í haust. 

Breska leikkonan Simone Ashley stal senunni í kjól frá Tamara …
Breska leikkonan Simone Ashley stal senunni í kjól frá Tamara Ralph Couture. AFP
Breska leikkonan Sienna Miller beraði óléttukúluna í dressi frá Schiaparelli …
Breska leikkonan Sienna Miller beraði óléttukúluna í dressi frá Schiaparelli Haute Couture. AFP
Breska fyrirsætan Jodie Turner-Smith í Viktor & Rolf Haute Couture.
Breska fyrirsætan Jodie Turner-Smith í Viktor & Rolf Haute Couture. AFP
Fyrirsætan Poppy Delevingne, fatahönnuðurinn Stella McCartney og leikkonan Carey Mulligan …
Fyrirsætan Poppy Delevingne, fatahönnuðurinn Stella McCartney og leikkonan Carey Mulligan voru glæsilegar. AFP
Breski rapparinn Stormzy í Ferragamo.
Breski rapparinn Stormzy í Ferragamo. AFP
Breska leikkonan Kate Winslet var glæsileg í hvítri dragt.
Breska leikkonan Kate Winslet var glæsileg í hvítri dragt. AFP
Kanadíska fyrirsætan Winnie Harlow í Zuhair Murad Couture.
Kanadíska fyrirsætan Winnie Harlow í Zuhair Murad Couture. AFP
Breska leikkonan Emilia Clarke í kjól frá Dior.
Breska leikkonan Emilia Clarke í kjól frá Dior. AFP
Breski sundkappinn Tom Daley í Fendi.
Breski sundkappinn Tom Daley í Fendi. AFP
Breska fyrirsætan Munroe Bergdorf var fallega förðuð með dökkan varalit …
Breska fyrirsætan Munroe Bergdorf var fallega förðuð með dökkan varalit sem setti punktinn yfir i-ið. AFP
Breska fyrirsætan Georgia May Jagger í Vivienne Westwood.
Breska fyrirsætan Georgia May Jagger í Vivienne Westwood. AFP
Breski hönnuðurinn Daniel Lee var glæsilegur á rauða dreglinum.
Breski hönnuðurinn Daniel Lee var glæsilegur á rauða dreglinum. AFP
Breska leikkonan Gemma Chan í kjól frá Louis Vuitton.
Breska leikkonan Gemma Chan í kjól frá Louis Vuitton. AFP
Þýski ljósmyndarinn Ellen Von Unwerth var töff á rauða dreglinum.
Þýski ljósmyndarinn Ellen Von Unwerth var töff á rauða dreglinum. AFP
mbl.is