Unnsteinn og Hulda sátu fyrir hjá Adidas

Fatastíllinn | 15. september 2023

Tónlistarmaðurinn Unnsteinn Manuel Stefánsson og Hulda Katarína Sveinsdóttir, leirlistakona og verslunarstjóri í Andrá, sátu fyrir í nýrri herferð íþróttarisans Adidas sem fór í loftið á dögunum. 

Unnsteinn Manuel Stefánsson og Hulda Katarína Sveinsdóttir sátu fyrir í …
Unnsteinn Manuel Stefánsson og Hulda Katarína Sveinsdóttir sátu fyrir í nýrri herferð íþróttarisans Adidas. Samsett mynd

Tónlistarmaðurinn Unnsteinn Manuel Stefánsson og Hulda Katarína Sveinsdóttir, leirlistakona og verslunarstjóri í Andrá, sátu fyrir í nýrri herferð íþróttarisans Adidas sem fór í loftið á dögunum. 

Tónlistarmaðurinn Unnsteinn Manuel Stefánsson og Hulda Katarína Sveinsdóttir, leirlistakona og verslunarstjóri í Andrá, sátu fyrir í nýrri herferð íþróttarisans Adidas sem fór í loftið á dögunum. 

Á myndunum, sem birtust á Instagram-reikningi Adidas í Taílandi, er ný lína Adidas Terrex í samstarfi við National Geographic kynnt. Þetta er önnur samstarfslínan sem gefin er út, en í þetta sinn eru fötin innblásin af ferðalagi í leit að norðurljósunum. 

Myndirnar virðast hafa verið teknar á Íslandi og eru fyrirsæturnar klæddar í fötum frá toppi til táar úr nýju línunni.

mbl.is