Sigur Íslands á Englandi á Wembley á föstudaginn fór ekki fram hjá Karli Bretakonungi. Hann grínaðist með leikinn við David Beckham á þriðjudaginn. Karl var að veita viðurkenningu í St. James-höll þar sem Beckham var gestur.

„Hvað var þetta á Wembley?“ spurði Karl knattspyrnustjörnuna fyrrverandi að því fram kemur á vef Daily Mail.
„Ég held að við ættum ekki að lesa of mikið í þetta,“ svaraði Beckham en leikurinn var vináttuleikur.
„Það skiptir ekki máli er það nokkuð? Þetta var eins konar upphitun. Þú vilt ekki eyða allri orkunni í upphafi,“ sagði konungurinn og sáust þeir félagar hlæja.