Vikan var skrautleg á Instagram. Þó nokkrir flúðu rigninguna á höfuðborgarsvæðinu og nutu þess að fylla á d-vítamín birgðirnar á suðrænum slóðum á meðan aðrir gerðu það besta úr veðrinu. Þar á meðal voru knattspyrnumennirnir Aron Jóhannsson, Gylfi Sigurðsson og Adam Ægir Pálsson, og tónlistarkonan Birgitta Haukdal, en þau skelltu sér öll í veiði og skemmtu sér konunglega þó svo það hafi ekki verið bongó allan tímann.

Knattspyrnumennirnir Aron Jóhannsson, Gylfi Sigurðsson og Adam Ægir Pálsson skelltu sér í veiðiferð og skemmtu sér konunglega þrátt fyrir að hafa ekki veitt neitt.
Vinkonur Jóhönnu Helgu Jensdóttur áhrifavalds komu henni rækilega á óvart með glæsilegu steypiboði.
Íris Svava Pálmadóttir, þroskaþjálfi og samfélagsmiðlastjarna, naut veðurblíðunnar og skellti sér í göngutúr með nýfædda dóttur sína.
Meðlimir íslensku poppsveitarinnar Iceguys gáfu á dögunum út nýtt lag og tónlistarmyndband. Rúrik Gíslason gaf fylgjendum sínum á Instagram innsýn á bak við tjöldin.
Tónlistarkonan Birgitta Haukdal skellti sér líka í veiði eins og knattspyrnumennirnir og veiddi í allskyns veðráttu.
Tara Sif Birgisdóttir fór ásamt eiginmanni sínum, Elfari Elí Schweitz Jakobssyni, í draumaferð til Nice. Hjónin heimsóttu einnig Mónakó og Cannes.
Útvarpskonan Eva Ruza skemmti sér drottningarlega í brúðkaupi í Slóvanía á dögunum.
Bríet Ísis Elfar er á fleygiferð um landið þessa dagana.
Rakel María Hjaltadóttir og Guðmundur Lúther Hallgrímsson reimuðu á sig gönguskóna og skelltu sér út í góða veðrið.
Sandra Björg Helgadóttir var stórglæsileg í bleikum sumarkjól.
Tónlistamaðurinn Bubbi Morthens gæti verið að hefja nýtt tískutrend!
Það er stuð á heimili tónlistarkonunnar Sölku Eyfeld!
TikTok-stjarnan Embla Wigum nýtur lífsins til hins ýtrasta á Marbella á Spáni og sendi fylgjendum sínum rafrænt póstkort í gegnum Instagram.
Leikkonan Júlíana Sara Gunnarsdóttir var alsæl þegar hún skálaði fyrir 34 ára afmæli sínu.
Áhrifavaldurinn Lára Clausen lætur ekki fara illa um sig í sólinni í Króatíu.