Inga Lind Karlsdóttir, eigandi Skot Productions og umsjónarmaður golfþáttar á Stöð 2, hefur fest kaup á krúttlegu einbýlishúsi í miðbænum. Húsið er 136 fm að stærð og var reist 1906. Kaupin fóru fram 17. maí 2024 og fékk Inga Lind húsið afhent 30. júlí. Inga Lind greiddi 149.000.000 kr. fyrir húsið.

Húsið er á þremur hæðum, með miðhæð, kjallara og risi og er með gluggum í þrjár áttir.
Inga Lind komst í fréttir fyrr á árinu þegar hún seldi einbýlishús sitt við Mávanes í Arnarnesi á 850.000.000 kr. Hannes Hilmarsson einn af stærstu eigendum Atlanta og eiginkona hans, Guðrún Þráinsdóttir, keyptu húsið.
Húsið við Mávanes 17 var teiknað af arkitektastofunni Gláma Kím og byggt 2012. Það hefur að geyma alla helstu töfra sem nokkurt hús getur státað af. Það er við sjávarsíðu Arnarnessins og snýr í suður. Úr húsinu er óhindrað útsýni út á haf og prýða það stórir gluggar sem gera veruna í húsinu ógleymanlega.
Smartland óskar Ingu Lind til hamingju með krútthúsið!