Hjónin Ingólfur Guðmundsson og Helga Guðný Thodors hafa sett einstaka íbúð við Ránargötu á sölu. Um er að ræða 118 fm íbúð sem er á annarri hæð í húsi sem reist var 1931. Hjónin fluttu til Íslands þegar kórónuveiran geisaði en áður bjuggu þau í Kaliforníu þar sem hann vann við teiknimyndagerð en hún rak Barre-stúdio. Eftir að þau fluttu heim opnaði hún Núna Collective sem er heilsuræktarstöð sem staðsett er úti á Granda. Helga er líka grafískur hönnuður og Ingólfur hefur starfað sem „Layout Artist“ fyrir teiknimyndir. Hann starfaði til dæmis fyrir Walt Disney Animation Stutio í Bandaríkjunum en vinnur núna fyrir Reykjavík Visual Effects.

Heimili Ingólfs og Helgu Guðnýjar er einstaklega skemmtilega innréttað. Það er heimilislegt og hlýlegt en hjónin fóru í mikla tiltekt áður en þau flutti til Íslands og tóku bara það sem mér sem þau þurftu að nota. Helga Guðný sagði frá þessum hugmyndum þegar hún var gestur Heimilislífs Smartlands síðasta vetur.
„Þegar við ákváðum að flytja heim í covid var Vesturbærinn það eina sem kom til greina,“ segir Helga Guðný.
„Hún er ótrúlega spes þessi íbúð. Hún er orginal.“
„Við erum „fixer upperar“, öll okkar 13 ár í Kaliforníu vorum við að leigja kytrur og hús og við gátum aldrei látið neitt vera þótt við værum að leigja. Það var alltaf verið að laga og breyta. Þetta er vel byggt hús en erum við háleitar hugmyndir hvað við viljum gera. Þetta er lítil íbúð,“ segir Helga Guðný og segir að íbúðin sé 114 fm og það sé stundum þröngt á þingi.