Eldgosinu er lokið

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 6. september 2024

Eldgosinu er lokið

Eldgosinu norðan við Stóra-Skógfell er lokið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Eldgosinu er lokið

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 6. september 2024

Eldgosinu við Sundhnúkagíga er lokið.
Eldgosinu við Sundhnúkagíga er lokið. mbl.is/Árni Sæberg

Eldgosinu norðan við Stóra-Skógfell er lokið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Eldgosinu norðan við Stóra-Skógfell er lokið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

„Gosið stóð yfir í um 14 daga og er það þriðja lengsta eldgosið af þeim sex sem hafa orðið á Sundhnúksgígaröðinni frá því í desember 2023. Gosið sem hófst um miðjan mars stóð í um 54 daga og eldgosið sem hófst í lok maí stóð yfir í um 24 daga,“ segir í tilkynningunni.

Engin sjáanleg virkni hefur verið í gígnum í um hálfan sólarhring en síðustu merki um gosóróa sáust síðdegis í gær.

Fram kemur í tilkynningunni að landris sé hafið að nýju í Svartsengi og að nýtt hættumat verði uppfært síðar í dag.

mbl.is