Er hægt að teygja sig í vasa skattgreiðanda í of þröngum jökkum?

Marta María | 19. september 2024

Er hægt að teygja sig í vasa skattgreiðanda í of þröngum jökkum?

Ríkissjónvarpið sýnir sjónvarpsþætti á mánudagskvöldum sem kallast Silfrið. Einu sinni hétu þessir þættir Silfur Egils í höfuðið á þáverandi umsjónarmanni þáttarins, Agli Helgasyni. Þættirnir voru á dagskrá á sunnudagsmorgnum klukkan 11.00 og horfðu sjónvarpsáhorfendur framhjá því hvað gestir þáttarins voru stundum allt of nývaknaðir - eða mögulega ekki sofnaðir. 

Er hægt að teygja sig í vasa skattgreiðanda í of þröngum jökkum?

Marta María | 19. september 2024

Ríkissjónvarpið sýnir sjónvarpsþætti á mánudagskvöldum sem kallast Silfrið. Einu sinni hétu þessir þættir Silfur Egils í höfuðið á þáverandi umsjónarmanni þáttarins, Agli Helgasyni. Þættirnir voru á dagskrá á sunnudagsmorgnum klukkan 11.00 og horfðu sjónvarpsáhorfendur framhjá því hvað gestir þáttarins voru stundum allt of nývaknaðir - eða mögulega ekki sofnaðir. 

Ríkissjónvarpið sýnir sjónvarpsþætti á mánudagskvöldum sem kallast Silfrið. Einu sinni hétu þessir þættir Silfur Egils í höfuðið á þáverandi umsjónarmanni þáttarins, Agli Helgasyni. Þættirnir voru á dagskrá á sunnudagsmorgnum klukkan 11.00 og horfðu sjónvarpsáhorfendur framhjá því hvað gestir þáttarins voru stundum allt of nývaknaðir - eða mögulega ekki sofnaðir. 

Stundum var alveg hægt að ímynda sér að fólk hefði komið beint úr eftirteiti og beint í beina útsendingu en það hafði ákveðið skemmtanagildi og örvaði ímyndunarafl áhorfandans um leið. 

Nú eru þættirnir á dagskrá klukkan 22.15 á mánudagskvöldum. Það er merkilegt að sérfræðingar í svefnrannsóknum hafi ekki mótmælt fyrir utan sjónvarpshúsið í Efstaleiti því fólk á að vera komið í ró á þessum tíma ef markmiðið er að ná góðum nætursvefni. 

Eftir að hafa horft á þátt mánudagskvöldsins er einni spurningu öðrum fremur ósvarað: Hvers vegna eru þingmenn ekki með stílista? Hvers vegna hefur það ekki verið sett á fjárlög að þingmenn, sem eiga að vera þverskurður þjóðfélagsins, fái aðstoð til að vera sér, flokki sínum og þjóð til sóma. Þetta gæti gerst í sömu mund og fólk fær aðgangskort inn á nýjan vinnustað til þess að auka starfsánægju og auka sjálfstraust. 

Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármálaráðherra, klæddist þessum fötum í Silfrinu á …
Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármálaráðherra, klæddist þessum fötum í Silfrinu á mánudagskvöld. Morgunblaðið/Árni Sæberg

Ekki sjálfgefið að fæðast með góðan smekk

Það fæðast ekki allir með góðan smekk en það ættu flestir, sem fá aðstoð stílista, að geta tileinkað sér nokkrar grunnreglur sem eru við lýði í hinum vestræna heimi. Stílisti gæti byrjað á að fara yfir það með fólki hvernig það ber sig að við það að velja föt í réttri stærð.

Þingmenn eru oft og tíðum í jökkum og er þá sama hvers kyns er. Það væri til dæmis ágætt að fara yfir hvar sniðsaumur á öxlum á að vera. Í hefðbundnum jökkum á sniðsaumur að ná út að liðamótum handleggs. Svo tekur ermin við. Þegar jakki er keyptur í of lítilli stærð þá fer sniðsaumurinn inn á axlirnar og ermarnar ná allt of langt inn á til dæmis framstykkið. Þegar jakki er keyptur í of lítilli stærð þá kuðlast ermarnar þannig að það veldur nánast óþægindum að horfa á fólk setja hendurnar fram. Nú ef ermarnar eru mjög þröngar þá væri hægt að kaupa jakka í stærri stærð, þannig að þær passi yfir upphandlegginn og láta svo setja ermarnar í upp á nýtt og endursníða þannig jakkann þannig að útkoman yrði sómasamleg. 

Inga Sæland formaður Flokks fólksins klæddist hvítum jakka í sjónvarpinu …
Inga Sæland formaður Flokks fólksins klæddist hvítum jakka í sjónvarpinu á mánudagskvöldið. Eins og sjá má er hann of þröngur yfir upphandleggina. Ljósmynd/Skjáskot Rúv

Of þröngar ermar

Inga Sæland í Silfrinu á mánudagskvöld er gott dæmi um þetta. Hvíti jakkinn sem hún klæddist var fallegur en ekki alveg í réttri stærð. Ermarnar voru of þröngar og í hvíta efninu varð það einfaldlega of áberandi. Sérstaklega ef baða þarf út örmunum orðum sínum til áréttingar.

Inga Sæland hefur áður sést í jakkanum sem er sumarlegur …
Inga Sæland hefur áður sést í jakkanum sem er sumarlegur á sumardegi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Erfitt að komast í veski skattgreiðanda

Ef Sigurður Ingi Jóhannsson hefði einhvern tímann hitt stílista þá hefði hann ekki fest kaup á jakkafötum með óreglulegu köflóttu munstri. Fötin eru úr of þunnu efni þannig að það vantar allan burð í þau og svo eru ermarnar of þröngar yfir upphandlegginn. Það var í raun frekar óþægilegt að horfa upp á vakúmpakkaða upphandleggi fjármálaráðherrans. Þetta þekkja allir sem hafa gert þau mistök að kaupa sér of lítil föt. Þau valda óþægindum. Á móti kemur að það er mun erfiðara að teygja sig í veskisvasa skattgreiðenda þannig búinn.

Hér er Sigurður Ingi í of þröngum jakka.
Hér er Sigurður Ingi í of þröngum jakka.

Allt of dökkar augabrúnir 

Svo var það Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra. Ef hún hefði einhvern tímann hitt stílista þá hefði hann mjög líklega sagt henni að of dökkar augabrúnir passa ekki við ljóst hár. Augabrúnir mega vera örlítið dekkri tón en hárið en ekki 20 tónum dekkri, alveg sama hve alvarlegum augum ráðherra segist líta ástandið. Það þarf að horfa á heildarmyndina þegar val á augabrúnalit er annarsvegar, með tilliti til húðlitar og hárlitar.

Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra þyrfti að tóna niður litinn í augabrúnunum.
Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra þyrfti að tóna niður litinn í augabrúnunum. Ljósmynd/Skjáskot Rúv

Hvað gerðist eftir að Ragna hætti? 

Förðunardeild Rúv hefði kannski átt að koma auga á þetta. Ragna Fossberg, sem stýrði sminkinu á Rúv um langa hríð en er því miður hætt, hefði pottþétt reynt að ná svertunni í burtu með hreinsiefnum sem eru til í skápunum í Efstaleiti. Sjálf hef ég lent í svona hreinsun af hálfu Rögnu Fossberg fyrir mörgum árum þegar hún nuddaði svertu úr hársverðinum sem hafði lekið niður á ennið. Hún leit á mig hvössum augum og sagði: „Hver litaði eiginlega á þér hárið manneskja.“

Ragna Fossberg hóf störf sem förðunarmeistari Sjónvarpsins árið 1971. Hún …
Ragna Fossberg hóf störf sem förðunarmeistari Sjónvarpsins árið 1971. Hún er því miður hætt störfum. mbl.is/Golli

Nú virðist enginn vera að spá í neinu og allt of bleikir varalitir brúkaðir þegar brúntóna varalitir þykja meira sexí. Einu sinni var svo eftirsótt að komast í sminkustólinn á Rúv að fólk lét sig hafa það að mæta í hundleiðinlega umræðuþætti bara til þess að geta skinið skærar í teitum síðar um kvöldið. Sú tíð virðist vera liðin. Rúv þarf augljóslega að gera eitthvað í sínum förðunarmálum en stóra spurningin er: Hvers vegna er Alþingi ekki með stílista? Er fólki í allt of þröngum jökkum og með stimplaðar augabrúnir treystandi fyrir þjóðarskútunni? 

Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra.
Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra. mbl.is/Karítas
mbl.is