Jack Smith, sérstakur saksóknari, segir í dómsskjölum að Donald Trump hafi framið glæpi til þess að hnekkja niðurstöðum forsetakosninganna 2020. Glæpirnir hafi ekki tengst forsetaembættinu og því ætti hann ekki að njóta friðhelgi forsetaembættisins í málinu.
Jack Smith, sérstakur saksóknari, segir í dómsskjölum að Donald Trump hafi framið glæpi til þess að hnekkja niðurstöðum forsetakosninganna 2020. Glæpirnir hafi ekki tengst forsetaembættinu og því ætti hann ekki að njóta friðhelgi forsetaembættisins í málinu.
Jack Smith, sérstakur saksóknari, segir í dómsskjölum að Donald Trump hafi framið glæpi til þess að hnekkja niðurstöðum forsetakosninganna 2020. Glæpirnir hafi ekki tengst forsetaembættinu og því ætti hann ekki að njóta friðhelgi forsetaembættisins í málinu.
Þetta kemur fram 165 blaðsíðna dómsskjali sem Smith lagði fram til þess að sannfæra dómstóla um að taka upp ákæru dómsmálaráðuneytisins gegn Trump.
Málið varðar meðal annars áhlaupið á þinghúsið 6. janúar 2021.
Trump átti að fara fyrir dómstóla í mars fyrir að hafa reynt að snúa við niðurstöðu forsetakosninganna.
Málið var sett á ís um stundarsakir þar sem lögfræðiteymi Trumps sagði að hann nyti friðhelgi þar sem hann hefði verið forseti þegar þessir meintu glæpir áttu að hafa verið framdir.
Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur komist að þeirri niðurstöðu að ekki sé hægt að sækja fyrrverandi forseta til saka fyrir opinber embættisverk, en þó megi sækja þá til saka ef meintir glæpir tengist ekki embættinu.
Smith segir í dómsskjölunum að meintir glæpir Trumps hafi hins vegar ekki tengst embættinu.
„Þó að sakborningur hafi verið sitjandi forseti á meðan ákærða samsærið var framið var samsærið í grunninn einkamál,“ sagði Smith.
Hann sagði að meint ólöglegt athæfi Trumps hefði verið framið af Trump sem frambjóðanda, ekki sem forseta.
Trump hefur lýst sig saklausan og sakað Smith um að hundsa æðsta dómstólinn. Talsmaður Trump-kosningateymisins, Steven Cheung, sagði vísa ætti málinu frá.
Enn fremur sagði hann ákæruna fara gegn stjórnarskránni og vera hlaðna lygum og hlutdræga.
Ákæra í málinu var gefin út 1. ágúst en málið í Washington D.C. hverfist fyrst og fremst í kringum árásina á þinghúsið í höfuðborginni 6. janúar árið 2021, nokkrum vikum áður en Trump lét af embætti forseta.
Trump er ekki ákærður fyrir ákveðin ummæli í tengslum við árásina á þinghúsið, heldur er ákæran byggð á opnari túlkun, meðal annars um samsæri um svik við Bandaríkin og samsæri gegn réttindum bandarískra borgara.
Í dómsskjölunum er sagt að Trump og aðstoðarmenn hans hafi dreift röngum upplýsingum um meint kosningasvik, hvatt embættismenn repúblikana í ríkjunum sem Biden vann til að grafa undan úrslitunum, búið til falska kjörmenn og þrýst á Mike Pence varaforseta að staðfesta ekki atkvæði kjörmanna.
Smith segir í skjalinu að það séu nægar sannanir fyrir því að Trump hafi vitað að fullyrðingar hans um kosningasvik væru rangar vegna þess að nánir ráðgjafar hans hefðu sagt honum það.
Meðal annars segir Smith að fyrrverandi starfsmaður í Hvíta húsinu sé tilbúinn að bera vitni um samtal sem hann varð vitni að á milli Trumps og fjölskyldu hans.
„Það skiptir ekki máli hvort þú vannst eða tapaðir kosningunum. Við verðum að leggja allt í sölurnar,“ á vitnið að hafa heyrt Trump segja við fjölskyldu sína degi eftir kosningarnar.
Tanya Chutkan, dómarinn í málinu, hefur ekki gefið út dagsetningu fyrir það hvenær réttarhöld hefjast. Það verður þó ekki fyrir kosningarnar 5. nóvember.
Í sumar var trúnaðarskjalamáli Trumps í Flórída vísað frá, en það tengist ekki þessu máli beint þó að Jack Smith hafi einnig leitt það mál gegn Trump.