Sonur Fanneyjar Dóru skírður í höfuðið á öfum sínum

Frægir fjölga sér | 7. október 2024

Áhrifavaldurinn og förðunarfræðingurinn, Fanney Dóra Veigarsdóttir, og sambýlismaður hennar, Aron Ólafsson rafvirkjanemi, eignuðust son mánudaginn 23. september. Sonurinn er annað barn parsins en fyrir eiga þau dótturina Thaliu Guðrúnu sem kom í heiminn í mars 2021. 

Áhrifavaldurinn Fanney Dóra gaf syni sínum nafn.
Áhrifavaldurinn Fanney Dóra gaf syni sínum nafn. Samsett mynd/Instagram

Áhrifavaldurinn og förðunarfræðingurinn, Fanney Dóra Veigarsdóttir, og sambýlismaður hennar, Aron Ólafsson rafvirkjanemi, eignuðust son mánudaginn 23. september. Sonurinn er annað barn parsins en fyrir eiga þau dótturina Thaliu Guðrúnu sem kom í heiminn í mars 2021. 

Áhrifavaldurinn og förðunarfræðingurinn, Fanney Dóra Veigarsdóttir, og sambýlismaður hennar, Aron Ólafsson rafvirkjanemi, eignuðust son mánudaginn 23. september. Sonurinn er annað barn parsins en fyrir eiga þau dótturina Thaliu Guðrúnu sem kom í heiminn í mars 2021. 

Nú er sonurinn kominn með nafn en Fanney Dóra greindi frá því á samfélagsmiðlum að hann héti Veigar Óli. Sonurinn er skírður í höfuðið á öfum sínum tveimur. Faðir Fanneyjar Dóru heitir Veigar en faðir Arons heitir Ólafur. Litli Veigar Óli sameinar báða afa sína. 

Smartland óskar fjölskyldunni til hamingju með nafnið á syninum! 

Sonurinn Veigar Óli er kominn með nafn.
Sonurinn Veigar Óli er kominn með nafn.
mbl.is