Hvar færðu ljósan loðjakka?

Fatastíllinn | 10. október 2024

Hvar færðu ljósan loðjakka?

Ljós og loðinn jakki er yfirhöfn sem við ættum að fara að hafa augun opin fyrir. Sú yfirhöfn er klassísk og verður mikið notuð næstu árin. Veturinn lét vita af sér aðeins of snemma og eflaust margir sem ekki hafa enn haft fyrir því að sækja vetrarfötin í geymsluna en ef svona jakki leynist þar þá er ráð að hafa hraðar hendur.

Hvar færðu ljósan loðjakka?

Fatastíllinn | 10. október 2024

Aubí Óskarsdóttir og Fanney Ingvarsdóttir í ljósum jökkum sem munu …
Aubí Óskarsdóttir og Fanney Ingvarsdóttir í ljósum jökkum sem munu koma sér vel í vetur. Ljósmynd/Hlynur Hólm

Ljós og loðinn jakki er yfirhöfn sem við ættum að fara að hafa augun opin fyrir. Sú yfirhöfn er klassísk og verður mikið notuð næstu árin. Veturinn lét vita af sér aðeins of snemma og eflaust margir sem ekki hafa enn haft fyrir því að sækja vetrarfötin í geymsluna en ef svona jakki leynist þar þá er ráð að hafa hraðar hendur.

Ljós og loðinn jakki er yfirhöfn sem við ættum að fara að hafa augun opin fyrir. Sú yfirhöfn er klassísk og verður mikið notuð næstu árin. Veturinn lét vita af sér aðeins of snemma og eflaust margir sem ekki hafa enn haft fyrir því að sækja vetrarfötin í geymsluna en ef svona jakki leynist þar þá er ráð að hafa hraðar hendur.

Þennan jakka má nota við hvaða tilefni sem er. Yfir kósýgallann þegar það þarf að skreppa út í búð, við gallabuxur og svo yfir kjóla við fínni tilefni. Ljósi liturinn er praktískur og passar við margt í fataskápnum. Hann er líka fín tilbreyting frá öllu þessu svarta sem vetrinum fylgir.

Gerviloð hefur nánast alveg tekið við alvöru loði undanfarin ár. Mörg af stærstu tískuhúsum heims hafa hætt að framleiða flíkur úr ekta loði og efnin sem komu í staðinn eru mörg mjög vönduð.

Hér fyrir neðan eru nokkrir flottir jakkar sem fást í verslunum hér á landi núna. 

Jakki frá Stand Studio, kostar 59.995 kr. og fæst í …
Jakki frá Stand Studio, kostar 59.995 kr. og fæst í GK Reykjavík.
Jakki frá Stand Studio, fæst í GK Reykjavík og kostar …
Jakki frá Stand Studio, fæst í GK Reykjavík og kostar 79.995 kr.
Stuttur jakki úr ZÖRU, kostar 19.995 kr.

Jakki frá ROCKANDBLUE, fæst í Company's og kostar 38.995 kr.

mbl.is