Instagram: Berir leggir og brjóstaskorur

Hverjir voru hvar | 28. október 2024

Instagram: Berir leggir og brjóstaskorur

Vikan á Instagram var fjörug og hressandi. Sumir fóru í Hrekkjavökuteiti á meðan aðrir fóru á fjall. Haustið er komið í öllu sínu veldi enda veturinn genginn formlega í garð. Instagram-fólkið lét veðurfar ekki stoppa sig og skartaði berum leggjum og brjóstaskorum af miklum móð. 

Instagram: Berir leggir og brjóstaskorur

Hverjir voru hvar | 28. október 2024

Brynhildur Gunnlaugsdóttir, Sunneva Eir Einarsdóttir, Heiðdís Rós Reynisdóttir og Birta …
Brynhildur Gunnlaugsdóttir, Sunneva Eir Einarsdóttir, Heiðdís Rós Reynisdóttir og Birta Líf Ólafsdóttir áttu geggjaða viku. Samsett mynd

Vikan á Instagram var fjörug og hressandi. Sumir fóru í Hrekkjavökuteiti á meðan aðrir fóru á fjall. Haustið er komið í öllu sínu veldi enda veturinn genginn formlega í garð. Instagram-fólkið lét veðurfar ekki stoppa sig og skartaði berum leggjum og brjóstaskorum af miklum móð. 

Vikan á Instagram var fjörug og hressandi. Sumir fóru í Hrekkjavökuteiti á meðan aðrir fóru á fjall. Haustið er komið í öllu sínu veldi enda veturinn genginn formlega í garð. Instagram-fólkið lét veðurfar ekki stoppa sig og skartaði berum leggjum og brjóstaskorum af miklum móð. 

35 ára! 

Erna Hrund Hermannsdóttir, verkefnastýra útflutnings á virknidrykknum Collab og bloggari, tók sæta haustsjálfu í tilefni af 35 ára afmæli sínu. 

Svöl Svala!

Söngstjarnan Svala Björgvinsdóttir kíkti út á lífið.

View this post on Instagram

A post shared by SVALA (@svalakali)

Lukkuleg!

Leikkonan Júlíana Sara Gunnarsdóttir er sátt með sinn mann, Andra Jóhannesson þyrluflugmann!

Skvísustælar!

Brynhildur Gunnlaugsdóttir klæddi sig upp sem karakter Pamelu Anderson úr kvikmyndinni Barb Wire frá árinu 1996. 

Farsæll ferill!

Pattra Sriyanonge, tískubloggari og leikkona, rifjaði upp farsælan fótboltaferil eiginmanns síns, Theódórs Elmars Bjarnasonar, í tilefni þess að hann spilaði síðasta fótboltaleik sinn um helgina. 

Í góðum félagsskap!

Íslenska tónlistarundrið Laufey Lín Bing Jónsdóttir stillti sér upp ásamt söngkonunum Oliviu Rodrigo og Chappell Roan á frumsýningu tónleikamyndar Rodrigo. 

View this post on Instagram

A post shared by laufey (@laufey)

Sunneva og Sabrina!

Sunneva Eir Einarsdóttir, samfélagsmiðla- og hlaðvarpsstjarna, klæddi sig upp eins og bandaríska söngstjarnan Sabrina Carpenter í tilefni af hrekkjavöku sem fjölmargir landsmenn fagna um þessar mundir. 

„Oops!...I Did It Again“

Birta Líf Ólafsdóttir, meðstjórnandi Sunnevu Eirar í hlaðvarpsþættinum Teboðið, smellpassaði í rauða pleðurgallann sem Britney Spears gerði frægan í tónlistarmyndbandinu við lagið Oops!...I Did It Again.

View this post on Instagram

A post shared by Birta Líf (@birtalifolafs)

Víkingsmaður!

Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason, jafnan kallaður Prettyboitjokko, er stoltur stuðningsmaður Víkings. 

Partí!

Tónlistarmaðurinn Aron Can Gultekin tryllti lýðinn!

Lét sig ekki vanta!

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, mætti á völlinn til að styðja sína menn.

Kominn í nám!

Helgi Ómarsson áhrifavaldur hóf jógakennaranám á Sólheimum um helgina. 
 

Svakalegt dress!

Elvira Gígja tók gallaþemað upp á næsta stig!

View this post on Instagram

A post shared by Elvira (@elviragigja)

Hrekkjavökudrottning!

Heiðdís Rós Reynisdóttir förðunarmeistari í Bandaríkjunum klæddi sig upp á um helgina. 

Kominn í víðar buxur!

Guðmundur Birkir Pálmason, Gummi kíró, klæddist víðum gallabuxum og hlýrri peysu. 

Náttúrubarn! 

Fegurðardrottningin Hugrún Egilsdóttir klæddi sig í hlý föt og fór á fjall. 

mbl.is