Tveimur dögum eftir að fyrrverandi ruðningskappinn Jason Kelce mölbraut farsíma háskólanema vegna móðgandi ummæla í garð Taylor Swift, sáust þau deila ljúfu augnabliki saman.

Jason er bróðir Travis Kelce, ruðningskappa og kærasta söngkonunnar Taylor Swift. Jason og Taylor voru stödd saman á leik Kansas City Chiefs og Tampa Bay Buccaneers í amerísku NFL-deildinni í Missouri. En Travis leikur með Chiefs.
Aðdáendur söngkonunnar voru duglegir að mynda augnablikið þegar Jason og Taylor féllust í faðma á Arrowhead-leikvanginum. En móðir Taylor var einnig með þeim á leiknum.
Fyrrverandi ruðningskappinn Jason komst í fréttir síðastliðinn laugardag er hann sló til háskólanema við Pennsylvaníu-háskóla, í kjölfar þess að hinn síðarnefndi kallaði bróður Jason, Travis, aumingja fyrir að vera með Taylor.
Þegar síminn skall í jörðina hreytti Jason í háskólanemann: „Hvern kallarðu aumingja núna?“ Eftir atvikið á Jason að hafa sagt að hann hafi svarað hatri með hatri, en að það hafi ekki endilega verði besta leiðin.
Taylor Swift og Travis Kelce hafa ekki tjáð sig opinberlega um atvikið.