Domino’s Pizza hefur ákveðið að bjóða öllu erlendu starfsfólki sínu íslenskunám hjá Bara tala. Samstarf Domino’s og Bara tala hófst fyrir um mánuði og nú hefur appið þeirra verið innleitt fyrir allt erlent starfsfólk.

Í tilkynningu frá Domino’s Pizza segir að árangurinn hafi strax komið í ljós og það sé mikil ánægja með framtakið meðal starfsfólks.
„Hjá Domino’s starfar stór hópur fólks sem ekki talar íslensku,“ segir Bylgja Björk Pálsdóttir, mannauðsstjóri Domino’s á Íslandi, í tilkynningunni. Hún segir mikilvægt að starfsfólkið fái tækifæri til að læra tungumálið.
„Okkur finnst það skipta miklu máli. Þannig kemst líka starfsfólk hraðar inn í íslenskt samfélag og líður betur,“ segir hún.
Samstarfið við nýsköpunarfyrirtækið Bara tala hefur nú þróast enn frekar þar sem íslenskunámið hefur verið sérsniðið að starfsemi Domino’s. Þetta felur í sér sérhæfð námskeið fyrir starfsfólk sem vinnur við pizzugerð og heimsendingarþjónustu.
„Það er frábært að sjá fyrirtæki eins og Domino’s sem hefur verið leiðandi í verslun og þjónustu á Íslandi síðast liðin 30 ár taka þetta skref og gera íslenskuna aðgengilegri,“ segir Jón Gunnar Þórðarson, forstjóri Bara tala.