„Talandi um áfengisneyslu þá dettur mér tengdafaðir minn í hug“

Marta María | 11. nóvember 2024

„Talandi um áfengisneyslu þá dettur mér tengdafaðir minn í hug“

Fólk sem hefur brennandi áhuga á lífinu lítur ekki á bestu árin sem afplánun ævi sinnar. Það nýtir hverja mínútu til þess að fá krydd í sinn dag og kann að meta það sem lífið hefur upp á að bjóða. Það býr sér til dagskrá og gerir eitthvað upplífgandi á hverjum degi. Fólk sem horfir á lífið með jákvæðum augum lifir yfirleitt miklu skemmtilegra lífi en þeir sem eru með botnfrosið hjarta.

„Talandi um áfengisneyslu þá dettur mér tengdafaðir minn í hug“

Marta María | 11. nóvember 2024

Marta María Winkel Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála mbl.is skrifar um hjónaband.
Marta María Winkel Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála mbl.is skrifar um hjónaband. Ljósmynd/Kári Sverriss

Fólk sem hefur brennandi áhuga á lífinu lítur ekki á bestu árin sem afplánun ævi sinnar. Það nýtir hverja mínútu til þess að fá krydd í sinn dag og kann að meta það sem lífið hefur upp á að bjóða. Það býr sér til dagskrá og gerir eitthvað upplífgandi á hverjum degi. Fólk sem horfir á lífið með jákvæðum augum lifir yfirleitt miklu skemmtilegra lífi en þeir sem eru með botnfrosið hjarta.

Fólk sem hefur brennandi áhuga á lífinu lítur ekki á bestu árin sem afplánun ævi sinnar. Það nýtir hverja mínútu til þess að fá krydd í sinn dag og kann að meta það sem lífið hefur upp á að bjóða. Það býr sér til dagskrá og gerir eitthvað upplífgandi á hverjum degi. Fólk sem horfir á lífið með jákvæðum augum lifir yfirleitt miklu skemmtilegra lífi en þeir sem eru með botnfrosið hjarta.

Fólk á besta aldri hefur oftar en ekki upplifað meira en fólk í kringum tvítugt og það veit að stundum gefur á bátinn. Þegar allt fer á versta veg eru tvær leiðir; að gefast upp eða setja hausinn undir sig og halda áfram.

Fólk er gert úr mismunandi DNA en það er þó eitt sem veikir öll kerfi, sama hversu sterk þau eru í grunninn. Það er áfengisneysla, sérstaklega ef fólk stundar svokallaða áhættudrykkju; að drekka of oft eða of mikið magn í einu.

Tengdapabbi minn

Talandi um áfengisneyslu þá dettur mér tengdafaðir minn í hug. Herra Winkel, sem er danskur yfirlæknir á eftirlaunum, fann það út að heilsufar hans leyfði ekki að hann drykki eins og 25 ára háskólanemi. Hann gæti ekki fyllt vel á tankinn og dansað uppi á borðum fram á rauðanótt án þess að stytta lífaldur sinn hraustlega. Þrátt fyrir að lífsþorstinn væri enn þá upp á sirka 8,9, á skalanum 1-10, þá þoldi líkaminn töluvert minna en áður.

Hann ákvað því að búa til graf fyrir sjálfan sig og í raun setja reglur út frá tölfræði svo hann þyrfti ekki að setja tappann í flöskuna. Hann tók saman upplýsingar um sjálfan sig út frá ástandi lifrar, aldri, kyni, bakgrunni og ætterni. Þannig gat hann sett þetta upp í línurit og reiknað út hvað hann myndi lifa lengi ef hann drykki X-áfengiseiningar á viku. Það eru þónokkur ár síðan þessar persónurannsóknir fóru fram og ef guð lofar mun hann fagna 90 ára afmæli á næsta ári. Hann reiknaði líka út hvaða mataræði hentaði honum best til þess að auka hressleika og kenndi mér heilmargt þegar við fórum saman í stórmarkað.

Herra Winkel fann það út að hann gat ekki drukkið …
Herra Winkel fann það út að hann gat ekki drukkið lengur eins og 25 ára háskólanemi og tók málin í sínar hendur. Food Photographer/Unsplash

Hætti að keðjureykja

Þegar herra Winkel var ungur maður í Danmörku reyktu allir og auðvitað byrjaði hann líka að reykja. Gjarnan mátti finna hann í reykmekki á rannsóknarstofunni þar sem sáust varla handaskil. Líkt og með áfengiseiningarnar og neyslu þeirra þá setti hann reykingarnar upp í línurit þar sem daglegt magn af sígarettum var borið saman við framtíðarlífslíkur.

Niðurstöður voru sláandi. Þær sýndu að þetta Winkel-musteri myndi ekki þola mörg karton í viðbót. Til þess að hætta að reykja fékk hann uppáskrifuð róandi lyf sem hann bruddi í þrjár vikur á meðan nikótínið var að fara úr líkamanum. Það tekur nefnilega 21 dag að breyta um lífsvenjur. Síðan þá hefur hann ekki stolist í einn smók – ekki einu sinni þegar hann fær sér einn stífan viskí.

Það eru ekki allir eins vel settir og herra Winkel að geta sjálfir reiknað út lífslíkur sínar út frá aldri, kyni og öllu því. Við getum hins vegar farið í blóðprufu og látið mæla gildin í blóðinu. Það er hægt að gera hjá heimilislækni og á fleiri stöðum og getur verið mjög gagnlegt fyrir þá sem þrá að lifa lífinu og hafa gaman.

mbl.is