Skellti sér á skeljarnar á fallegri strönd á Bora Bora

Ást í Hollywood | 14. nóvember 2024

Skellti sér á skeljarnar á fallegri strönd á Bora Bora

Lokaþátturinn af raunveruleikaþættinum The Golden Bachelorette var sýndur á miðvikudag og endaði hann með bónorði.

Skellti sér á skeljarnar á fallegri strönd á Bora Bora

Ást í Hollywood | 14. nóvember 2024

Chapple og Vassos eiga bjarta framtíð fyrir höndum.
Chapple og Vassos eiga bjarta framtíð fyrir höndum. Skjáskot/Instagram

Lokaþátturinn af raunveruleikaþættinum The Golden Bachelorette var sýndur á miðvikudag og endaði hann með bónorði.

Lokaþátturinn af raunveruleikaþættinum The Golden Bachelorette var sýndur á miðvikudag og endaði hann með bónorði.

Joan Vassos, hin svokallaða „gullpiparmey“, játaði bónorði tryggingastjórans Chock Chappel, en 24 karlmenn, 50 ára og eldri, kepptu um ástir Vassos í þáttaseríunni.

Vassos, sem er 61 árs og starfar sem skólastjóri í Maryland, var formlega kynnt til leiks sem fyrsta „gullpiparmeyin“ í maí.

Á miðvikudag stóðu tveir keppendur eftir, Chock Chapple, 60 ára, og Guy Gansert, 66 ára, sem báðir höfðu heillað piparmeyna upp úr skónum síðustu vikurnar.

Vassos endaði á að játa ást sína á Chapple sem þá skellti sér á skeljarnar á fallegri strönd á Bora Bora og bað hennar með fjögurra karata demantshring frá skartgripahönnuðinum Neil Lane.

Gerry Turner, fyrsti „gullpip­ar­sveinn­inn“, fór á skelj­arn­ar og bað Th­eresu Nist í lokaþætti The Gold­en Bachel­or í nóv­em­ber á síðasta ári.

Parið gekk í hjóna­band í beinni út­send­ingu í janú­ar en greindi frá skilnaði sín­um aðeins þrem­ur mánuðum síðar.

Von­andi verður út­kom­an önn­ur hjá Vassos og Chapple.

mbl.is