Ólafur Kristján Guðmundsson, sjómaður og tónlistarmaður, fann ástina á ný eftir skilnað þegar hann hitti Stefán Svan Aðalheiðarson fatahönnuð og kaupmann í Stefánsbúð. Líf hans snarbreyttist þegar hann var 44 ára. Hann er tvíkynhneiguðr og hafði verið í ástarsambandi með barnsmóður sinni í 21 ár. Ólafur sagði frá lífshlaupi sínu í þættinu Segðu mér hjá Sigurlaugu Margréti Jónasdóttur á Rás 1.

„Ég var ástfanginn þar til við vorum það ekki og þá þurfti ég að gera upp við sjálfan mig fullt af málum; hver er ég? Hvað vil ég?“ sagði Ólafur í viðtalinu en en þar kemur fram að hann hafi alla tíð vitað að hann væri tvíkynhneigður.
Eftir að hafa verið fráskilinn í eitt ár fann ástina í örmum Stefáns Svans sem rekur Stefánsbúð og lýsir honum á fallegan hátt.
„Það var aldrei planið að fara þessa leið en sem betur fer gerði ég það og er rosalega þakklátur.“
Ólafur segir að það hafi gerjast lengi í honum að hann væri tvíkynhneigður og hann óttaðist að stíga fyrsta skrefið. Hann kynntist Stefáni þegar hann var búinn að vera skilinn í eitt ár.
„Ég var búinn að ímynda mér að þetta yrði meira mál, fólk myndi ekki samþykkja þetta, ég myndi verða fyrir einhverju,“ segir hann.
Ólafur stofnaði ballhljómsveitina D7 sem er sami hópur og að baki hljómsveitinni Hoffmann sem er starfandi í dag. Ólafur er sjálfur söngvari sveitarinnar.
Þeir hafa gefið út tvær plötur, Bad Seeds árið 2004 og svo Your secrets are safe with us árið 2009. Tveimur árum síðar lagði hljómsveitin hins vegar frá sér míkrófón og hljóðfæri og var óstarfandi þar til á þessu ári.
„Núna 2024 ákváðum við að prófa að telja í bara til að hafa gaman, upp á félagsskapinn. Það eru tuttugu ár frá fyrstu plötunni, fimmtán frá seinni og allt í einu vorum við komnir með húsnæði, menn höfðu efni á að kaupa græjur og áður en við vissum af vorum við komnir í upptökustúdíó Of Monsters and men með Bjarna Jenssyni.“