Það var líf og fjör hjá Instagrömmurum vikunnar sem ýmist sleikja sólina utan landsteinanna eða njóta íslenska vetursins í öllu sínu veldi. Á meðan Magnea Björg Jónsdóttir og Sunneva Einarsdóttir léku sér í snjónum voru hlaupadrottningarnar Mari Järsk og Elísa Kristinsdóttir að njóta lífsins á Tenerife. Sumir voru þó innandyra og klóruðu sér í kollinum yfir stafarugli og sárum minningum íslenskrar stafsetningu.

Félagsmiðladrottningin og fitnessskvísan, Hafdís Björg Kristjánsdóttir, lætur sér fátt um finnast og tók af sér speglasjálfu þar sem hún sýnir þvottabrettið í tilefni þess. Spurning hvort hún vísi í sambandsslit þeirra Kleina?
Hlaupakonan Elísa Kristinsdóttir nýtur lífsins á Tenerife, ásamt fleiri hlaupaskvísum. Hún fór í göngu í Pyrámides de Guimar-garðinum á Tenerife og nokkuð ljóst af myndunum að dæma að hún er í hörku formi!
Þingmaðurinn og skemmtikrafturinn, Jón Gnarr, rifjaði upp „sárar“ minningar í tengslum við ritað mál. Hann fór ítarlega yfir hvað hefði vafist fyrir honum varðandi stafsetningu og hvernig tölvurnar björguðu honum frá böli handskriftar. Í tilefni setti hann inn gamla mynd af handskrift sinni, frá því hann var 13 ára, og nafnið hans var vitlaust stafsett, en ekki hvað?
Camilla Rut Rúnarsdóttir, áhrifavaldur og eigandi Camy Collections, gaf fylgjendum sínum innsýn í síðustu daga.
Magnea Björg Jónsdóttir, samfélagsmiðlastjarna og hluti af LXS-genginu, lék sér í snjónum.
Kristín Sif Björgvinsdóttir, útvarpsstjarna á K100, er stödd í skíðaferð á Ítalíu ásamt eiginmanni sínum, Stefáni Jakobssyni tónlistarmanni.
Fanney Ingvarsdóttir, markaðsfulltrúi Bioeffect og fyrrverandi fegurðardrottning, varði helginni í bústað í Úthlíð ásamt eiginmanni sínum, Teiti Reynissyni, viðskiptafræðingi í Landsbankanum, og börnum.
Tískubloggarinn Pattra Sriyanonge virti fyrir sér fuglana á Tjörninni.
Sandra Björg Helgadóttir, félagsmiðlastjarna og aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Bestseller, reimaði á sig gönguskóna og tók góðan göngutúr með son sinn sem svaf eins og engill í vagninum.
Tískubloggarinn og áhrifavaldurinn, Helgi Ómarsson, fór í snjóboltaslag. Hann er á tímamótum núna því hann er hættur með hlaðvarpið sitt.
Rakel María Hjaltadóttir, förðunarfræðingur, þjálfari og hlaupadrottning, og Guðmundur Lúther Hallgrímsson, stafrænn markaðsstjóri hjá Bláa lóninu, fögnuðu eins árs sambandsafmæli sínu í Kólumbíu.
Sunneva Eir Einarsdóttir, félagsmiðla- og hlaðvarpsstjarna, kíkti í bæinn og kom vinkonu sinni og meðstjórnanda Teboðsins, Birtu Líf Ólafsdóttur, markaðsfræðingi og hlaðvarpsstjörnu, skemmtilega á óvart með barnasturtu.
Hlaupadrottningin Mari Järsk er stödd á suðrænum slóðum.
Guðmundur Birkir Pálmason, oft þekktur sem Gummi kíró, nýtur lífsins á Ítalíu um þessar mundir.
Rannveig Bjarnadóttir, kærasta Gísla Þorgeirs Kristjánssonar handknattleiksmanns, er heldur betur stolt af sínum manni.
Leikkonan Aldís Amah Hamilton deildi fallegri færslu um sambýlismann sinn, Kolbein Arnbjörnsson leikara, í tilefni af bóndadeginum.