Knattspyrnumaðurinn Jón Arnar Barðdal, sem lék síðasta sumar með ÍBV, kom sinni heittelskuðu, Hjördísi Lilju Hjálmarsdóttur sjúkraþjálfara, heldur betur á óvart þegar hann fór á skeljarnar og bað um hönd hennar í snæviþaktri skíðabrekku í þorpinu Madonna Di Campiglio á Ítalíu nú á dögunum.

Hjördís Lilja greindi frá gleðitíðindunum á Instagram-síðu sinni á mánudag og birti meðal annars myndir af rómantíska augnablikinu þegar Jón Arnar fór á skeljarnar. Hún deildi einnig skemmtilegum myndum af parinu að skála í kampavín í tilefni dagsins.
„Orðlaus,“ skrifaði Hjördís Lilja við myndaseríuna.
Smartland óskar parinu hjartanlega til hamingju!