Borgarstjóri lék einleik: Kom flatt upp á stjórnina

Kjaraviðræður | 21. febrúar 2025

Borgarstjóri lék einleik: Kom flatt upp á stjórnina

Heiða Björg Hilmisdóttir, nýr borgarstjóri og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, klauf sig frá stjórn SÍS í aðdraganda og eftir að innanhússtillaga Ástráðs Haraldssonar var lögð fram í kjaradeilu kennara. Vildi hún ein að tillagan yrði samþykkt og var mjög áfjáð í að tillagan yrði fram sett. 

Borgarstjóri lék einleik: Kom flatt upp á stjórnina

Kjaraviðræður | 21. febrúar 2025

Heiða Björg var kjörin borgarstjóri í Ráðhúsinu í dag en …
Heiða Björg var kjörin borgarstjóri í Ráðhúsinu í dag en þangað mætti einnig fjöldi kennara til að láta í sér heyra. Samsett mynd

Heiða Björg Hilmisdóttir, nýr borgarstjóri og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, klauf sig frá stjórn SÍS í aðdraganda og eftir að innanhússtillaga Ástráðs Haraldssonar var lögð fram í kjaradeilu kennara. Vildi hún ein að tillagan yrði samþykkt og var mjög áfjáð í að tillagan yrði fram sett. 

Heiða Björg Hilmisdóttir, nýr borgarstjóri og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, klauf sig frá stjórn SÍS í aðdraganda og eftir að innanhússtillaga Ástráðs Haraldssonar var lögð fram í kjaradeilu kennara. Vildi hún ein að tillagan yrði samþykkt og var mjög áfjáð í að tillagan yrði fram sett. 

Samkvæmt heimildum mbl.is mælti hún ein í stjórn fyrir því að innanhússtillaga ríkissáttasemjara yrði samþykkt. 

Enn fremur hefur mbl.is heimildir fyrir því að ástæða þess að SÍS samþykkti ekki tillöguna sé sú að hún þyki of dýr auk þess sem ríkar áhyggjur séu af því að forkólfar verkalýðshreyfingarinnar muni taka illa í launahækkanir umfram þær sem samið hefur verið um á almennum vinnumarkaði.

Málið er hið undarlegasta sökum þess að flatt kom upp á stjórn SÍS þegar Ástráður Haraldsson tjáði sig í fjölmiðlum um það að aðilar beggja vegna borðsins væru hlynntir því að miðlunartillagan hans yrði lögð fram. 

Heildarhækkun upp á 24,5% 

Aðdragandi þess að tillagan var lögð fram er eftirfarandi samkvæmt heimildum mbl.is: 

Stjórn SÍS fundaði klukkan 8 á miðvikudagsmorgun með ríkissáttasemjara sem kynnti innanhússtillögu sína. Strax reis upp andstaða hjá stjórn SÍS á fundinum við að verið væri að fara fram úr því sem stjórnin treysti sér til og umfram tillögu sem lögð var fram og samþykkt hjá SÍS í janúar.

Bar nýja tillagan með sér heildarhækkun launa um 24,5% á samningstímanum. Til samanburðar hafa almennar launahækkanir verið 14-15%.  

Samkvæmt heimildum mbl.is sagði Ástráður á fundinum að ekki yrði haft samband við Kennarasambandið um tillöguna nema SÍS væri því sammála. Eftir að stjórn hafði rætt saman fór Heiða Björg með það í farteskinu af fundinum að hafna bæri því að innanhússtillagan yrði fram sett. 

Kom það því flatt upp á stjórn sambandsins þegar Ástráður tilkynnti um það í fjölmiðlum að báðir aðilar væru hlynntir því að tillagan yrði sett fram.

Var því efnt til stjórnarfundar í gærkvöldi en Heiða mætti ekki á fundinn. Þegar reynt var að hafa samband við hana mun hún ekki hafa svarað, en á sama tíma haldið erindi á fundi Samfylkingar. Stjórn óskaði því eftir fresti til að taka afstöðu til tillögunnar til hádegis í dag. 

Heiða ein á báti 

Boðað var til upplýsingafundar í morgun með sveitarstjórum landsins þar sem fram kom afstaða þeirra til innanhússtillögunnar. Yfirgnæfandi meirihluti þeirra, sem tjáðu sig á fundinum, var andsnúinn því að samþykkja tillöguna. Raunar var einungis ein manneskja sem vildi fá samninginn samþykktan. Var það Heiða Björg. 

Haldinn var fundur stjórnar í framhaldinu og mætti Heiða ekki heldur á þann fund. Eflaust hefur hún verið með hugann við nýjan borgarstjórnarmeirihluta sem kynntur var um miðjan dag í dag. Var Heiða kynnt þar sem nýr borgarstjóri. Sagði hún af því tilefni að hún vildi samþykkja tillögu þá er Ástráður lagði fram í dag. 

Ekki þarf mikla fimleika til þess að áætla að þar með væri hún að reyna að halda andliti gagnvart kennurum í nýmyndaðri vinstristjórn í stað þess að eftirmæli hennar í kennaradeilunni yrðu þau að hún sem formaður SÍS hefði tvívegis beitt málsóknum gagnvart verkföllum kennara fyrr í deilunni. 

Hafa ber í huga að Heiða tók við sem nýr borgarstjóri fyrr í dag. Ef vilji er fyrir hendi er ekkert sem hamlar því að Reykjavíkurborg semji sérstaklega við kennara án aðkomu SÍS.

Ástráður hafi vitað að ekki væru líkur á samþykki 

SÍS sendi frá sér eftirtektarverða tilkynningu í dag þar sem kemur fram að afstaða stjórnar til innanhússtillögu Ástráðs Haraldssonar ríkissáttasemjara hafi strax mætt skýrri andstöðu.

Því hafi það komið flatt upp á stjórn SÍS þegar ríkissáttasemjari tilkynnti að samkomulag væri á milli beggja deiluaðila um að leggja fram nýja innanhússtillögu í deilunnni. Þá þriðju frá því kjaraviðræður hófust. 

Það skýrir þó ekki hvers vegna Ástráður taldi sig hafa samþykki beggja aðila fyrir framsetningu hennar. Samkvæmt heimildum mbl.is var það Inga Rún Ólafsdóttir formaður samninganefndar sem samþykkti að tillagan yrði lögð fram en þó með þeim fyrirvara að hún fengi ekki náð fyrir augum stjórnar.

mbl.is