Floni bað Daniil um að syngja inn á hræðilegt lag

Poppkúltúr | 21. febrúar 2025

Tónlistarmaðurinn Friðrik Róbertsson, betur þekktur undir listamannsnafninu Floni, hugðist fá tónlistarmanninn Daniil til að syngja inn á nýtt lag hjá sér á dögunum. Það reyndist hins vegar vera saklaus hrekkur, en Floni segir lagið hafa verið hræðilegt og markmiðið að sjá viðbrögð Daniil.

Tónlistamennirnir Daniil og Floni.
Tónlistamennirnir Daniil og Floni. Samsett mynd

Tónlistarmaðurinn Friðrik Róbertsson, betur þekktur undir listamannsnafninu Floni, hugðist fá tónlistarmanninn Daniil til að syngja inn á nýtt lag hjá sér á dögunum. Það reyndist hins vegar vera saklaus hrekkur, en Floni segir lagið hafa verið hræðilegt og markmiðið að sjá viðbrögð Daniil.

Tónlistarmaðurinn Friðrik Róbertsson, betur þekktur undir listamannsnafninu Floni, hugðist fá tónlistarmanninn Daniil til að syngja inn á nýtt lag hjá sér á dögunum. Það reyndist hins vegar vera saklaus hrekkur, en Floni segir lagið hafa verið hræðilegt og markmiðið að sjá viðbrögð Daniil.

Átti erfitt með að halda andliti

Í TikTok-myndbandinu sem Floni deildi með aðdáendum sínum, sem er hér fyrir neðan, má sjá Flona kynna Daniil fyrir laginu með alvarlegu yfirbragði og biðja hann um að slást í lið með sér. Viðbrögð Daniils voru eftir því – hann virtist ringlaður yfir ástandinu.
Hann lét þó ekki blekkjast lengi og endaði á að spyrja hvort ekki væri hægt að gera einhverjar lagfæringar á laginu.

Fólk í athugasemdunum virtist þó sammála um að lagið væri í raun gott og hvetur þá félaga nú eindregið til að gefa það út.

@flonimusic smá skrítið að @daniil3hunna ♬ original sound - 𝐅𝐋𝐎𝐍𝐈
mbl.is