Hin tvítuga Sami Sheen, elsta barn fyrrverandi Hollywood-hjónanna Charlie Sheen og Denise Richards, stofnaði OnlyFans-reikning í júlí 2022, aðeins örfáum mánuðum eftir 18 ára afmælið sitt.

Sheen hefur vakið mikla athygli á síðunni og á aðeins tveimur árum hefur hún grætt hátt í þrjár milljónir bandaríkjadala eða því sem samsvarar 414 milljónum íslenskra króna.
OnlyFans-stjarnan, sem fagnar 21 árs afmæli sínu í byrjun mars, hefur þegar fest kaup á glæsihýsi og lúxusbifreið.
„Henni hefur gengið ótrúlega vel, myndefni hennar er mjög vinsælt og hún er nú þegar orðin margmilljónamæringur,” sagði ónefndur vinur stúlkunnar í samtali við Daily Mail á þriðjudag. „Og hún er bara rétt að byrja.“
Sheen selur erótískt efni og rukkar áskrifendur sína, nokkur þúsund manns, um 20 bandaríkjadali á mánuði eða tæplega þrjú þúsund íslenskar krónur.
Móðir Sheen, leikkonan Denise Richards, best þekkt fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni The World Is Not Enough frá árinu 1999, ákvað að feta í fótspor dóttur sinnar og stofnaði OnlyFans-reikning aðeins örfáum vikum eftir að dóttir hennar gerði það, enda sá hún fljótt hversu auðvelt það er að græða peninga á síðunni.
Hátt í 100.000 manns fylgja Richards.