Berry smellti rembingskossi á stórstjörnu í miðju viðtali

Óskarsverðlaunin | 3. mars 2025

Berry smellti rembingskossi á stórstjörnu í miðju viðtali

Leikkonan Halle Berry „hefndi“ sín, ef svo má að orði komast, þegar hún kom auga á kunnuglegt andlit á rauða dregli Óskarsverðlaunahátíðarinnar í nótt.

Berry smellti rembingskossi á stórstjörnu í miðju viðtali

Óskarsverðlaunin | 3. mars 2025

Halle Berry náði fram hefndum.
Halle Berry náði fram hefndum. Samsett mynd

Leikkonan Halle Berry „hefndi“ sín, ef svo má að orði komast, þegar hún kom auga á kunnuglegt andlit á rauða dregli Óskarsverðlaunahátíðarinnar í nótt.

Leikkonan Halle Berry „hefndi“ sín, ef svo má að orði komast, þegar hún kom auga á kunnuglegt andlit á rauða dregli Óskarsverðlaunahátíðarinnar í nótt.

Berry gekk rakleitt upp að leikaranum Adrien Brody, sem hreppti Óskarinn fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni The Brutalist síðar um kvöldið, og smellti á hann blautum kossi líkt og Brody gerði þegar Berry afhenti honum styttuna gylltu árið 2003.

Brody, sem mætti á verðlaunahátíðina ásamt kærustu sinni til fjögurra ára, tískuhönnuðinum Georginu Chapman, var í miðju viðtali þegar Berry tók utan um hann og kyssti hann ástríðufullum kossi.

„Fyrirgefðu mér, Georgina, en ég bara verð að gera þetta,“ sagði leikkonan við Chapman rétt áður en hún setti stút á varirnar og gerði sig klára fyrir innilegan koss.

Berry, Brody, Chapman og aðrir hlógu mikið og höfðu gaman af þessu skemmtilega atviki.

mbl.is