Fagnaði 37 ára afmæli sínu á framandi slóðum

Frægir ferðast | 3. mars 2025

Fagnaði 37 ára afmæli sínu á framandi slóðum

Rúrik Gíslason, tónlistarmaður, leikari og fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu, fagnaði 37 ára afmæli sínu á framandi slóðum í ár.

Fagnaði 37 ára afmæli sínu á framandi slóðum

Frægir ferðast | 3. mars 2025

Rúrik Gíslason.
Rúrik Gíslason. Skjáskot/Instagram

Rúrik Gíslason, tónlistarmaður, leikari og fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu, fagnaði 37 ára afmæli sínu á framandi slóðum í ár.

Rúrik Gíslason, tónlistarmaður, leikari og fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu, fagnaði 37 ára afmæli sínu á framandi slóðum í ár.

Rúrik, sem hefur verið velgjörðarráðherra SOS barnaþorpanna frá árinu 2018, ferðaðist alla leið til Afríku, nánar tiltekið Rúanda, þar sem hann hélt upp á afmælisdaginn ásamt hópi barna sem sungu fyrir hann afmælissönginn og færðu honum köku í tilefni dagsins.

„Takk fyrir að gera afmælisdaginn minn ógleymanlegan. Einu árinu eldri og innblásinn af öllu því frábæra fólki sem ég hef fengið að hitta hér. Ég eyddi afmælisdeginum mínum í að heimsækja börn sem hafa hlotið annað tækifæri, þökk sér þér.

Höldum áfram að gera heiminn að betri stað,” skrifaði Rúrik við myndskeið sem hann deildi á Instagram-síðu sinni.

Þetta er fyrsta heimsókn Rúriks til Rúanda en tónlistarmaðurinn hefur þó áður ferðast til Austur-Afríku. Árið 2022 heimsótti hann barnaþorp í Malaví og hitti meðal annars styrktarson sinn, Blessings.

Rúrik ræddi við blaðamann mbl.is og sagði frá upplifun sinni.

„Auðvitað búa Íslendingar misvel. Það er fullt af fólki á Íslandi sem á við sárt að binda. En ég vona að ég muni hugsa mig tvisvar um áður en ég byrja að kvarta og kveina yfir einhverju sem í raun og veru skiptir engu máli. Ég held að það hafi allir svolítið gott af þessu og upplifa þetta. Maður er alltaf að læra og víkka sjóndeildarhringinn. Ég tel að við höfum öll gott af því að kynna okkur þessa starfsemi og við hvaða aðstæður sumt fólk býr.“



mbl.is