Leggja á þrettán hundruð króna daggjald

Ferðamenn á Íslandi | 3. mars 2025

Leggja á þrettán hundruð króna daggjald

Í frumvarpi um kílómetragjald á ökutæki, sem fjármálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi, kemur fram að daggjald ökutækjaleigna hafi verið tekið til nánari skoðunar. Það verði 1.340 kr. miðað við 200 kílómetra akstur á dag, en árið 2017 var meðalakstur ferðamanna hér á landi um 230 km á dag

Leggja á þrettán hundruð króna daggjald

Ferðamenn á Íslandi | 3. mars 2025

Bent er á að samkvæmt gögnum frá Vegagerðinni hafi daglegur …
Bent er á að samkvæmt gögnum frá Vegagerðinni hafi daglegur meðalakstur erlendra ferðamanna á bílaleigubílum á árinu 2017 verið 230–250 km yfir sumarið. mbl.is/Árni Sæberg

Í frumvarpi um kílómetragjald á ökutæki, sem fjármálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi, kemur fram að daggjald ökutækjaleigna hafi verið tekið til nánari skoðunar. Það verði 1.340 kr. miðað við 200 kílómetra akstur á dag, en árið 2017 var meðalakstur ferðamanna hér á landi um 230 km á dag

Í frumvarpi um kílómetragjald á ökutæki, sem fjármálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi, kemur fram að daggjald ökutækjaleigna hafi verið tekið til nánari skoðunar. Það verði 1.340 kr. miðað við 200 kílómetra akstur á dag, en árið 2017 var meðalakstur ferðamanna hér á landi um 230 km á dag

„Í kjölfar ábendinga sem bárust í samráðsgátt um akstur bílaleigubíla var daggjald ökutækjaleigna tekið til nánari skoðunar. Bent er á að samkvæmt gögnum frá Vegagerðinni hafi daglegur meðalakstur erlendra ferðamanna á bílaleigubílum á árinu 2017 verið 230–250 km yfir sumarið. Yfir veturinn hafi meðalaksturinn verið 190–210 km,“ segir í frumvarpinu.

Þá segir að samkvæmt umræddri skýrslu fyrirtækisins Rannsóknir og ráðgjöf ferðaþjónustunnar, sem unnin hafi verið með stuðningi rannsóknasjóðs Vegagerðarinnar í júní 2018, komi fram að meðalakstur ferðamanna hafi numið að meðaltali um 230 km á dag á árinu 2017.

„Í ljósi þessa er talið rétt að fjárhæð daggjalds verði miðað við 200 kílómetra akstur á dag og verði því 1.340 kr.“

mbl.is