„Ég reyni að pakka létt en samt þannig að ég sé viðbúinn öllu“

48 tímar | 4. mars 2025

„Ég reyni að pakka létt en samt þannig að ég sé viðbúinn öllu“

Gísli S. Brynjólfsson for­stöðumaður markaðsmá­la hjá flug­fé­lag­inu Icelanda­ir er sérfræðingur í að pakka fyrir ferðalög. Það gerðist eftir að hann lenti í sósu-slysi á Taco-veitingastað og var bara með einn jakka meðferðis. 

„Ég reyni að pakka létt en samt þannig að ég sé viðbúinn öllu“

48 tímar | 4. mars 2025

Sigríður Anna Árnadóttir og Gísli S. Brynjólfsson hafa gert húsaskipti …
Sigríður Anna Árnadóttir og Gísli S. Brynjólfsson hafa gert húsaskipti í gegnum slíkar síður á netinu og líkað vel. Ljósmynd/Aðsend

Gísli S. Brynjólfsson for­stöðumaður markaðsmá­la hjá flug­fé­lag­inu Icelanda­ir er sérfræðingur í að pakka fyrir ferðalög. Það gerðist eftir að hann lenti í sósu-slysi á Taco-veitingastað og var bara með einn jakka meðferðis. 

Gísli S. Brynjólfsson for­stöðumaður markaðsmá­la hjá flug­fé­lag­inu Icelanda­ir er sérfræðingur í að pakka fyrir ferðalög. Það gerðist eftir að hann lenti í sósu-slysi á Taco-veitingastað og var bara með einn jakka meðferðis. 

Ef þú ættir að skilgreina sjálfan þig, hvernig ferðalagatýpa værir þú?

„Ég er blanda af skipulögðum og afslöppuðum flakkara. Ég elska að kynna mér staðinn áður en ég mæti og hafa hugmynd um hvað er hægt að gera, en ég vil líka alltaf hafa svigrúm til að láta tilfinninguna ráða. Það kemur alveg fyrir að ég bara mæti og veit ekki neitt – og það getur verið kostur. Oft eru það óvæntu augnablikin sem gera ferðina eftirminnilega,“ segir Gísli. 

Sigríður Anna Árnadóttir og Gísli S. Brynjólfsson eru hér stödd …
Sigríður Anna Árnadóttir og Gísli S. Brynjólfsson eru hér stödd á októberfesti í Stuttgart. Ljósmynd/Aðsend

Hvernig pakkar þú fyrir ferðalög?

„Ég tel mig vera orðinn nokkuð góðan pakkara. Ég reyni að pakka létt en samt þannig að ég sé viðbúinn öllu. Mér finnst oftast auðveldara að pakka fyrir frí en vinnuferðir. Ég er oftast með nokkur auka dress í vinnuferðum. Hef lært, t.d. af biturri reynslu, að það er ekki nóg að vera með einn jakka ef maður lendir t.d. í slysi á Taco-veitingastað,“ segir Gísli. 

Hvernig Taco-slys var það? 

„Ég bara jóðlaði heilu tacoi yfir ljósan jakka og var á leiðinni á fund! Það þurfti að græja jakka og skyrtu í flýti, sem reyndust ekki vera bestu kaupin sem ég hef gert,“ segir Gísli. 

Ertu fylgjandi handfarangri eða tékkar þú alltaf inn stærstu töskuna?

„Það fer svolítið eftir ferðinni. Ef það er helgarferð eða styttri vinnuferð, þá reyni ég að komast upp með handfarangur, það er einfaldara og fljótlegra. En ef ég er að fara í lengra ferðalag, eða ef það eru mismunandi árstíðir á leiðinni, þá er innrituð taska oft betri kostur. Mér finnst þó oftast þægilegast að tékka inn tösku svo ég þurfi ekki að vera dröslast með hana um flugvöllinn.“

Gísli heillaðist af Nashville þegar hann heimsótti borgina.
Gísli heillaðist af Nashville þegar hann heimsótti borgina. Drew Hays/Unsplash

Tekur stundum til í tölvupóstinum

Ertu með sérstaka flugrútínu? Hvað gerir þú um borð í vélinni?

„Ég er eiginlega ekki með neina ákveðna rútínu, það fer alveg eftir ferðinni. Stundum nýti ég tímann til að vinna, enda er flug frábær staður til að hreinsa upp email-bunkann. Stundum er þetta líka gott tækifæri til að hvíla sig fyrir komandi dag.“

Gísli fór til Nashville á dögunum en í apríl fer flugfélagið að fljúga þangað. Þegar hann er spurður að því hvað sé mest heillandi við Nashville segir hann að það sé margt. 

„Nashville er algjör gullmoli! Það er þessi einstaka blanda af suðurríkjastemningu, lifandi tónlistarmenningu og stórkostlegum mat. Borgin er þekkt fyrir að vera vagga country-tónlistar, en tónlistin þar fer langt út fyrir þann ramma. Það er alltaf eitthvað að gerast, hvort sem það eru stórtónleikar, lítil lifandi tónleikakvöld á börum eða hátíðir úti á götum.“

Fegurð Nashville er ríkuleg.
Fegurð Nashville er ríkuleg. Getty Images/Unsplash

Hvers vegna ætti fólk að vilja heimsækja borgina?

„Ef þú hefur gaman af tónlist, þá er Nashville „bucket list“-borg. Það er einstakt að ganga um göturnar og finna hvernig tónlistin er hluti af hversdagslífinu. Og ef þú ert sælkeri, þá er Nashville líka staður sem þú vilt ekki missa af, Nashville Hot Chicken er t.d. eitthvað sem þarf að prófa! Matarflóran þar er líka ótrúlega fjölbreytt, sérstaklega í East Nashville, þar sem þú finnur alls konar spennandi staði.“

Uppáhaldsstaður í borginni?

„Broadway-gatan er augljós valkostur, því þar finnur þú endalausa tónlist og stemningu, en ég elska líka East Nashville, sem er aðeins meira „laid-back“ og með frábært kaffihúsalíf og listasenur.“

Hér er Gísli í Færeyjum.
Hér er Gísli í Færeyjum. Ljósmynd/Aðsend

Var eitthvað sem kom þér á óvart?

„Já, hversu fjölbreytt borgin er! Ég hélt fyrirfram að þetta væri fyrst og fremst country-borg, en ég fann fljótt út að tónlistarmenningin er svo miklu stærri en það – hér er allt frá indie til jazz og blues, og yfir í EDM. Og líka hvað fólk er ótrúlega vinalegt! Suðurríkjamenn eru mjög vinalegir og miklir gestgjafar.“

Getur þú mælt með veitingastað í borginni?

„Já! Ef þú vilt klassískt Nashville Hot Chicken, þá verður þú að prófa Prince’s eða Hattie B’s. Fyrir eitthvað aðeins fínna er Bad Idea í East Nashville góður kostur, og líka lítill veitingastaður sem heitir Treehouse. Ég verð líka að mæla með Jane’s Hideaway – mjög sjarmerandi bar með lifandi tónlist, frábærum kokteilum og góðum mat. Svo verð ég að minnast á einn grjótharðan hamborgarastað sem heitir Dino’s Bar and Grill og er við hliðina á Jane’s í East Nashville. Það verða ekki mikið „real“ hamborgarastaðirnir en þessi!“

Hér eru Gísli og Anna ásamt börnum sínum í Mont …
Hér eru Gísli og Anna ásamt börnum sínum í Mont Saint Michel. Ljósmynd/Aðsend

Ef þú mættir verja 48 tímum í borginni. Hvað myndir þú gera?

„Möguleikarnir eru endalausir! Ég myndi byrja daginn á góðum brunch, kannski á Biscuit Love, og svo taka morgungöngu um Centennial Park. Eftir það myndi ég rölta um East Nashville, fara á kaffihús og skoða skemmtilegar verslanir. Um kvöldið væri það tónlist á Broadway, ekkert toppar stemninguna þar. Daginn eftir myndi ég heimsækja Country Music Hall of Fame, fá mér almennilegan BBQ-hádegisverð og klára ferðina með kvöldstund í Bluebird Café – einn af þeim stöðum þar sem þú getur heyrt næstu stórstjörnu áður en hún verður heimsfræg.

Svo, ef eitthvað stórt væri í gangi, t.d. stórtónleikar, leikur eða uppistand, þá myndi ég alltaf skella mér á það. Ég myndi mæla með því að tékka á því áður en farið er til Nashville, þar sem borgin er einn af stóru viðburðastöðunum í Bandaríkjunum og oft mikið um að vera.“

Hér eru Gísli og Anna ásamt börnum sínum í Doha. …
Hér eru Gísli og Anna ásamt börnum sínum í Doha. Á myndinni eru Ævar Orri Gíslason, Karen Ólöf Gísladóttir og Finnur Darri Gíslason. Ljósmynd/Aðsend

Spenntur fyrir Istanbul og Miami 

Hvernig lítur ferðaárið út hjá þér? Hvaða ferðalög eru á dagskrá?

„Það er alltaf eitthvað á döfinni! Ég er auðvitað spenntur fyrir að prófa nýju leiðirnar okkar, sérstaklega til Istanbúl og Miami, en Nashville er líka klárlega á listanum. Ég stefni á að nýta tækifærið og fara í bæði vinnuferðir og frí, með áherslu á staði þar sem ég get bæði slakað á og upplifað eitthvað nýtt, það er alltaf markmiðið. Ég eyddi jólum og áramótum í Taílandi og það var hreint út sagt frábær ferð og ég sé alveg fyrir mér með Icelanair tengingunni við Istanbúl að maður fari að líta meira til Asíu,“ segir hann. 

Hér eru Anna og Gísli í Bangkok.
Hér eru Anna og Gísli í Bangkok. Ljósmynd/Aðsend

Hvert er besta frí sem þú hefur farið í?

„Besta fríið sem ég hef farið í var árið 2019. Þá tók ég tvær vikur í húsaskiptum í Valencia og svo tvær vikur í St. Tropez og Saint-Raphaël á frönsku Rívíerunni. Fjórar vikur af sælu! Ferðin til Taílands var líka mikið ævintýri og ótrúlega afslappandi, sérstaklega að sleppa við jól og áramótin heima.

Síðustu 10 ár höfum við tekið flest sumarfrí í húsaskiptum, sem er algjör snilld. Við höfum notað HomeExchange.com og ég vil meina að þegar maður byrjar á þessu, þá ferðu ekki til baka. Oftast er aðstaðan mun betri, og staðsetningin í öðruvísi hverfum utan túrismans. Við höfum skipt á Spáni, Krít og margoft í Frakklandi, sem er eiginlega uppáhaldslandið mitt,“ segir Gísli. 

Hér eru Anna og Gísli ásamt börnunum sínum í Bangkok.
Hér eru Anna og Gísli ásamt börnunum sínum í Bangkok. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is