Vinsæl ísvél uppseld eftir að allt sprakk í loft upp á TikTok

TikTok | 8. mars 2025

Það er óhætt að segja að allir sem elska ís og frosna sælkerarétti hafi dottið í lukkupottinn þegar kemur að nýjustu græjunni á markaðnum, Ninja Creami-ísvélinni.
Græjan hefur verið áberandi á samfélagsmiðlum síðustu mánuði og óhætt að segja að samfélagsmiðlaæði í kringum græjuna hafi gripið um sig. Afleiðingarnar eru þær að vélin er uppseld hér á landi.

Hægt er að finna alls konar uppskriftir að dýrindis ís
Hægt er að finna alls konar uppskriftir að dýrindis ís Samsett mynd

Það er óhætt að segja að allir sem elska ís og frosna sælkerarétti hafi dottið í lukkupottinn þegar kemur að nýjustu græjunni á markaðnum, Ninja Creami-ísvélinni.
Græjan hefur verið áberandi á samfélagsmiðlum síðustu mánuði og óhætt að segja að samfélagsmiðlaæði í kringum græjuna hafi gripið um sig. Afleiðingarnar eru þær að vélin er uppseld hér á landi.

Það er óhætt að segja að allir sem elska ís og frosna sælkerarétti hafi dottið í lukkupottinn þegar kemur að nýjustu græjunni á markaðnum, Ninja Creami-ísvélinni.
Græjan hefur verið áberandi á samfélagsmiðlum síðustu mánuði og óhætt að segja að samfélagsmiðlaæði í kringum græjuna hafi gripið um sig. Afleiðingarnar eru þær að vélin er uppseld hér á landi.

Sprakk út á TikTok

Ninja Creami-ísvélin skaust upp á stjörnuhimininn þegar TikTok-notendur byrjuðu að deila stuttum myndböndum af hinum ýmsu uppskriftum að hræringum – allt frá próteinbombum yfir í sykurlausan sorbet.

Þegar fólk uppgötvaði hversu auðvelt væri að útbúa kremkennda og girnilega eftirrétti heima hjá sér með einum hnappi, var ekki aftur snúið. Samfélagsmiðlar fylltust af myndböndum þar sem fólk sýndi hvernig hægt væri að búa til hollari ís heima, og löngunin til að eignast gripinn jókst enn frekar.

Fyrir heilsu- og sælkera

Það sem heillar marga við Ninja Creami-vélina er fjölbreytnin. Fólk sem vill hollan og próteinríkan eftirrétt getur útbúið sitt eigið frosna góðgæti með minni sykri, á meðan aðrir kjósa hefðbundinn rjómaís.

Fyrir grænkera leynist svo ógrynni af hugmyndum á netinu um hvernig má búa til ljúffengan kókos- eða hafraís sem bragðast næstum eins og hefðbundinn mjólkurís.

Hér fyrir neðan er hægt að sjá nokkur myndbönd frá fólki sem er að nota þetta tryllitæki:

@thesamplan creami tips & tricks i swear by for rhe most perfect low calorie high protein ice cream #ninjacreami #proteinicecream #lowcalorie #highprotein #kitchenhacks #cookinghacks ♬ august full song - 🤷‍♂️

mbl.is