Bresku raunveruleikastjörnurnar Tommy Fury og Molly-Mae Hague, sem kynntust í bresku raunveruleikaþáttunum Love Island sumarið 2019, hafa gengið í gegnum ýmislegt saman síðustu ár og hafa verið mikið í umræðunni síðustu mánuði vegna sambandsslita þeirra.

Tommy, atvinnuboxari og yngri bróðir heimsmeistarans Tyson Fury, og Molly-Mae, áhrifavaldur og stofnandi vörumerkisins Maebe, urðu fljótt eitt vinsælasta parið í Love Island-seríunni. Þau komust alla leið í úrslit og enduðu í öðru sæti.
Eftir þátttöku sína fluttu þau saman til Manchester, keyptu draumahúsið og eignuðust sína fyrstu dóttur, Bambi, í janúar 2023. Tommy bað Molly-Mae í júlí sama ár með litlu Bambi í fanginu.
Þrátt fyrir rómantíska sögu og fjölskyldulíf staðfesti Molly-Mae í ágúst 2024 að parið hefði ákveðið að slíta sambandinu eftir fimm ára samband. Í einlægri Instagram-færslu lýsti hún sorg sinni og þakklæti fyrir tímann saman, og lagði áherslu á að dóttir þeirra yrði alltaf í forgangi.
Í mars 2025 kviknaði hins vegar aftur von hjá aðdáendum þeirra þegar þau birtu hvort í sínu lagi myndir frá fjölskylduferð til Dubai. Í nýlegu vloggi sagði Molly-Mae:
„Við fórum í frábæra fjölskylduferð með Tommy, pabba Bambi. Ég er ekki að reyna að fela neitt, en við erum bara að reyna að halda þessu eins persónulegu og við getum á meðan við sjáum hvort þetta sé eitthvað sem er þess virði að berjast fyrir.“
Það er því ekki útilokað að eldurinn kvikni á ný en parið vill taka sinn tíma. Hér fyrir neðan er hægt að sjá Instagram færslur frá þeim úr ferðalaginu.