Dr. Phil með áhyggjur af börnum Kardashian og West

Kardashian | 28. mars 2025

Dr. Phil með áhyggjur af börnum Kardashian og West

Sjónvarpssálfræðingurinn fyrrverandi Phillip Calvin McGraw, betur þekktur sem Dr. Phil, hefur miklar áhyggjur af velferð barna Kim Kardashian og Kanye West og telur líklegt að börnum þeirra, sem eru fjögur talsins, verði komið fyrir á fósturheimili ef Kardashian sækist ekki eftir fullu forræði hið snarasta.

Dr. Phil með áhyggjur af börnum Kardashian og West

Kardashian | 28. mars 2025

Dr. Phil ræddi um erfiðar fjölskylduaðstæður Kardashian-West-barnanna.
Dr. Phil ræddi um erfiðar fjölskylduaðstæður Kardashian-West-barnanna. Samsett mynd

Sjónvarpssálfræðingurinn fyrrverandi Phillip Calvin McGraw, betur þekktur sem Dr. Phil, hefur miklar áhyggjur af velferð barna Kim Kardashian og Kanye West og telur líklegt að börnum þeirra, sem eru fjögur talsins, verði komið fyrir á fósturheimili ef Kardashian sækist ekki eftir fullu forræði hið snarasta.

Sjónvarpssálfræðingurinn fyrrverandi Phillip Calvin McGraw, betur þekktur sem Dr. Phil, hefur miklar áhyggjur af velferð barna Kim Kardashian og Kanye West og telur líklegt að börnum þeirra, sem eru fjögur talsins, verði komið fyrir á fósturheimili ef Kardashian sækist ekki eftir fullu forræði hið snarasta.

McGraw greindi frá þessu í hlaðvarpsþættinum 2 Angry Men í umsjón þeirra Harvey Levin og Mark Geragos á miðvikudag.

„Ef þú biður um neyðarúrræði þá færðu neyðarúrræði,” sagði McGraw og hélt áfram:

„Það sem við viljum ekki sjá gerast er að þessi börn endi í fósturkerfinu vegna þess að það kerfi er stórgallað,” útskýrði sjónvarpsmaðurinn er hann tjáði sig um erfiðar uppeldisaðstæður barnanna, sem stafa aðallega af óstöðugri hegðun og geðheilsuvandamálum föður þeirra, fjöllistamannsins Kanye West, og hafa versnað mikið á síðustu árum.

McGraw sagði að það skipti litlu sem engu máli hvort þau ættu næga peninga, þeir myndu ekki bjarga þeim í þessum aðstæðum.

„Ef barnaverndaryfirvöld koma að málinu og telja að annað foreldrið bregðist ekki við á meðan hitt er óstöðugt, munu þau taka börnin. Og ef þú heldur: „Jæja, með svona mikla peninga munu þau aldrei enda á fósturheimili“ þá er það rangt,“ sagði hann.

West hefur mikið verið í fjölmiðlum undanfarin ár vegna andgyðinglegra ummæla sinna á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum, hrifningar sinnar á nasistum og aðdáunar á Adolf Hitler.

Kardashian er, að sögn heimildamanns, alveg hætt að lítast á blikuna og á víst erfitt með að vita af börnum sínum, North, Saint, Chicago og Psalm, í umsjón föður síns.

„Kim hefur fengið nóg og nú er hún hætt að vera sanngjörn í samskiptum sínum við Kanye,“ var haft eftir ónefndum vini Kardashian eftir að West réðst á tvö yngstu börn stjörnuhjónanna Beyoncé og Jay-Z með ill­yrðum á samfélagsmiðlin­um X fyrr í mánuðinum.

Kardashian er sögð líkleg til að sækjast eftir óskiptri forsjá yfir börnunum á komandi vikum.

mbl.is