100.000 evra styrkur til kaupa á húsnæði í Trentino á Ítalíu

Ferðaráð | 30. mars 2025

100.000 evra styrkur til kaupa á húsnæði í Trentino á Ítalíu

Sveitastjórn Trentino-héraðsins á Norður-Ítalíu, sem er héraðið um borgina Trento, mun borga íbúum landsins eða Ítölum búsettum erlendis fyrir að endurnýja eitt af fjölda yfirgefna heimila á svæðinu, þar sem Dólómítafjöll mæta Ölpunum.

100.000 evra styrkur til kaupa á húsnæði í Trentino á Ítalíu

Ferðaráð | 30. mars 2025

Hver sá sem skrifar undir samning þarf að búa þar …
Hver sá sem skrifar undir samning þarf að búa þar í tíu ár eða meira eða hafa eignina í útleigu í þann tíma. Raymond Petrik/Unsplash

Sveitastjórn Trentino-héraðsins á Norður-Ítalíu, sem er héraðið um borgina Trento, mun borga íbúum landsins eða Ítölum búsettum erlendis fyrir að endurnýja eitt af fjölda yfirgefna heimila á svæðinu, þar sem Dólómítafjöll mæta Ölpunum.

Sveitastjórn Trentino-héraðsins á Norður-Ítalíu, sem er héraðið um borgina Trento, mun borga íbúum landsins eða Ítölum búsettum erlendis fyrir að endurnýja eitt af fjölda yfirgefna heimila á svæðinu, þar sem Dólómítafjöll mæta Ölpunum.

Styrkurinn samanstendur af 80.000 evrum til endurbóta á húsnæði og 20.000 evrum við kaup á eigninni.

Hver sá sem skrifar undir samning þarf að búa þar í tíu ár eða meira eða hafa eignina í útleigu í þann tíma, annars mun sá hinn sami eiga á hættu að þurfa að endurgreiða styrkinn.

Fyrirkomulagið er liður í að vinna gegn fólksfækkun í ítölskum þorpum sem falla undir fjárlög sem hljóða upp á 30 milljónir evra fyrir þau sveitarfélög sem hafa 5.000 íbúa eða færri.

Styrkurinn sem hljóðar upp á 20.000 evrur á að standa …
Styrkurinn sem hljóðar upp á 20.000 evrur á að standa straum af 35-40% af heildarverði eignarinnar. Claudio Carrozzo/Unsplash

Húsnæði á eina evru

Í suðurhluta Ítalíu þekkist það að húsnæði hafa verið til sölu á eina evru. Í stað þess að fara þá leið hefur Trentino úthlutað tíu milljónum evra fyrir næstu tvö ár sem hvata til kaupa og endurbóta á því húsnæði sem þar er. Akkurinn felst einnig í að fjármagni sé dælt inn í byggingariðnaðinn og aðfangakeðjuna, líkt og fram kemur á CNN.

Styrkurinn sem hljóðar upp á 20.000 evrur á að standa straum af 35-40% af heildarverði eignarinnar.

Með því að kveða á um að eigandinn búi sjálfur í húsnæðinu í tíu ár eða hafi það í langtímaleigu, sér kerfið um að útrýma skammtímaleigu húsnæðis sem hefur verið vinsæl á stöðum sem þessum.

Hver einstaklingur getur einungis keypt þrjár eignir, sem þýðir að enginn geti komið inn og keypt upp allt þorpið.

Fyrirkomulagið er liður í að vinna gegn fólksfækkun í ítölskum …
Fyrirkomulagið er liður í að vinna gegn fólksfækkun í ítölskum þorpum. stephan hinni/Unsplash

CNN Travel

mbl.is