„Ferlið hefur kennt mér að hafa trú á sjálfri mér“

Keppni í fegurð | 31. mars 2025

„Ferlið hefur kennt mér að hafa trú á sjálfri mér“

Sóldís Vala Ívarsdóttir varð landsþekkt á einni nóttu þegar hún hreppti hinn eftirsóknarverða titil, Ungfrú Ísland, á síðasta ári. Hún segir drottningarlífið einstakt, afar gefandi og lærdómsríkt.

„Ferlið hefur kennt mér að hafa trú á sjálfri mér“

Keppni í fegurð | 31. mars 2025

Sóldís Vala er stórglæsileg ung kona.
Sóldís Vala er stórglæsileg ung kona. Ljósmynd/Aðsend

Sóldís Vala Ívarsdóttir varð landsþekkt á einni nóttu þegar hún hreppti hinn eftirsóknarverða titil, Ungfrú Ísland, á síðasta ári. Hún segir drottningarlífið einstakt, afar gefandi og lærdómsríkt.

Sóldís Vala Ívarsdóttir varð landsþekkt á einni nóttu þegar hún hreppti hinn eftirsóknarverða titil, Ungfrú Ísland, á síðasta ári. Hún segir drottningarlífið einstakt, afar gefandi og lærdómsríkt.

Á fimmtudaginn mun Sóldís Vala krýna arftaka sinn og er hún spennt að fylgjast með ævintýrum ungu konunnar sem tekur við titlinum, en 20 konur keppast um hann, og einnig full tilhlökkunar vegna viðburða sem eru í nánustu framtíð.

Af hverju ákvaðstu að taka þátt í Ungfrú Ísland?

„Í gegnum tíðina hef ég fengið mikinn innblástur frá fyrrverandi fegurðardrottningum og þá sérstaklega Örnu Ýr Jónsdóttur sem fagnar tíu ára krýningarafmæli sínu í ár. Hún hefur verið ófeimin við að tjá sig um óraunhæfa fegurðarstaðla sem er þörf umræða og svo finnst mér fegurðardrottningar bara hafa gert góða hluti.”

Hvernig leið þér þegar þú varst valin Ungfrú Ísland?

„Það var ógleymanlegt augnablik. Þegar ég var komin í topp fimm þá var ég í smá „blackout-i“ og svo þegar nafn mitt var kallað, sem ég bjóst alls ekki við að myndi gerast, þá upplifði ég tilfinningu sem ég hafði aldrei upplifað áður. Það tók mig alveg nokkra daga að átta mig á hvað hefði gerst. Þetta var mikið sjokk, en sjokk af bestu gerð.”

Sigurstundin!
Sigurstundin! Ljósmynd/Aðsend

Hvað hefur þetta tímabil gefið þér?

„Ég hef þroskast mjög mikið og lært inn á sjálfa mig. Besta lýsingin er að þetta sé eins og að vera kastað í djúpu laugina. Ferlið hefur kennt mér að hafa trú á sjálfri mér. Ég hef líka verið mjög heppin, en ég fékk tækifæri til að kynnast ótrúlega frábærum konum alls staðar að úr heiminum þegar ég tók þátt í Ungfrú Heimur í Mexíkó í nóvember í fyrra.”

Sóldís Vala var fulltrúi Íslands í Ungfrú heim í Mexíkó.
Sóldís Vala var fulltrúi Íslands í Ungfrú heim í Mexíkó. Ljósmynd/Aðsend

Hvernig líður þér að vera að krýna arftaka þinn?

Tilfinningarnar eru mjög blendnar. Ég er auðvitað mjög spennt að sjá hver tekur við krúnunni, en ég er líka smá leið að þessu tímabili sé að ljúka hjá mér. En ég verð alltaf Ungfrú Ísland 2024. Ég hlakka til að sjá keppendurna í ár skína skært á sviðinu á fimmtudag.”

Spennandi tímar eru fram undan hjá Sóldísi Völu en síðar á árinu fer hún út og keppir fyrir hönd Íslands í Miss Earth. 

„Já, það verður ótrúlega gaman, enda búið að vera ánægjulegt að vinna með Manuelu og þessu frábæra teymi sem hefur staðið þétt við bakið á mér.“

Sóldís Vala er glæsilegur fulltrúi Íslands.
Sóldís Vala er glæsilegur fulltrúi Íslands. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is