Leikkonan og samfélagsmiðlastjarnan Kristín Pétursdóttir er stödd í Lissabon, höfuðborg Portúgal, um þessar mundir ásamt sambýlismanni sínum, Þorvari Bjarma Harðarsyni handboltadómara.

Parið sem á von á sínu fyrsta barni saman á næstu mánuðum skellti sér í svokallaða „babymoon-ferð“, en slíkar ferðir hafa notið mikilla vinsælda undanfarin misseri hjá verðandi foreldrum.
Kristín hefur verið dugleg að sýna frá ferðalaginu á Instagram-síðu sinni og birti meðal annars fallegar óléttumyndir af sér röltandi á ströndinni.
„Beachy bumba,“ skrifaði hún við myndaseríuna.
Kristín og Þorvar Bjarmi greindu frá óléttunni í byrjun desember.
Kristín hefur verið mjög áberandi síðustu ár, en hún lék meðal annars í leiksýningunni Mæður sem sýnd var í Borgarleikhúsinu. Hún nýtur einnig mikilla vinsælda á samfélagsmiðlum, en hún er með yfir 21 þúsund fylgjendur á Instagram. Kristín á einn son úr fyrra sambandi.